
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson, í Heimsmálunum, á Útvarpi Sögu um þingkosningarnar í Bandaríkjunum og kosningabaráttu Donalds Trump forseta. Guðmundur sagði Trump hafa lagt allt kapp á að tryggja repúblikönum áframhaldandi meirihluta á Bandaríkjaþingi þrátt fyrir að flokkur sitjandi forseta tapi yfirleitt fylgi í miðkjörtímabilskosningum. Hann lýsti umfangsmikilli kosningabaráttu, miklum fjárframlögum og efnahagsstefnu sem hann sagði hafa styrkt stöðu repúblikana. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Trump fer sjálfur fyrir kosningabaráttunni
Guðmundur rifjaði upp að flokkur sitjandi forseta hefði jafnan átt undir högg að sækja í miðkjörtímabilskosningum. Trump hefði hins vegar ákveðið að sætta sig ekki við að sú hefð endurtæki sig.
Hann hefði hafið undirbúning kosningabaráttunnar mörgum mánuðum fyrr og síðan ferðast milli fylkja þar sem repúblikanar þyrftu sérstaklega á stuðningi að halda.
Kosningafundirnir væru fjölmennir og Trump héldi jafnvel 1 eða 2 fundi á dag. Þúsundir manna mættu á stóra leikvanga og biðu klukkustundum saman eftir að komast inn. Guðmundur sagði að með þessari baráttu hefði Trump tekist að virkja stuðningsmenn sína með óvenjulegum krafti.
Repúblikanar með mikið fjármagn
Fjáröflun repúblikana hefur einnig verið umfangsmikil. Guðmundur lýsti því hvernig auðugir stuðningsmenn og viðskiptafélagar Trump hefðu lagt mikið fé í kosningabaráttuna.
Hann nefndi sérstaklega Elon Musk og fjárhagsleg áhrif hans á bandarísk stjórnmál. Þá hefði fjármagn til auglýsinga og stuðnings við frambjóðendur repúblikana aukist verulega. Guðmundur benti á að fjármunir skiptu miklu í bandarískum kosningum og nefndi að í um 94% tilvika hefði sá frambjóðandi sem eyddi meira í auglýsingar náð sigri.
Þessi fjárhagslegi styrkur gæti skipt miklu fyrir repúblikana í þeim kjördæmum þar sem mjótt væri á mununum.
Tollastefnan styrki bandarískan iðnað
Arnþrúður spurði hvaða kosningaloforð Trump hefði staðið við og hvernig hægt væri að mæla árangur efnahagsstefnu hans.
Guðmundur nefndi sérstaklega minnkandi verðbólgu og auknar fjárfestingar í bandarískum iðnaði. Stórfyrirtæki væru að byggja nýjar verksmiðjur í Bandaríkjunum og færa framleiðslu þangað aftur.
Tollastefna forsetans hefði þar ráðið miklu. Með því að leggja tolla á innfluttar vörur væri erlendum framleiðendum gert hagkvæmara að framleiða innan Bandaríkjanna en flytja vörurnar þangað frá öðrum ríkjum. Sem dæmi nefndi Guðmundur þýska bílaframleiðendur sem gætu ákveðið að reisa verksmiðjur í Bandaríkjunum til að komast hjá tollum.
Hann sagði tollana ekki aðeins vera samningatæki heldur varanlega breytingu sem ætti að endurreisa bandarískan iðnað og fjölga störfum.
Gagnrýnir skoðanakannanir og fjölmiðla
Guðmundur gagnrýndi bandaríska fjölmiðla fyrir að hafa mánuðum saman fjallað um kosningarnar eins og demókratar væru á leið til sigurs.
Hann vísaði til upplýsinga um skoðanakannanir sem hefðu reynst óáreiðanlegar og gagnrýndi að fjölmiðlar gerðu ekki nægilegar kröfur til þeirra sem birtu kosningaspár. Að hans sögn væru álitsgjafar sjaldan kallaðir til ábyrgðar þegar niðurstöður kosninga yrðu allt aðrar en þeir hefðu spáð.
Guðmundur rakti einnig þær mælingar sem hann hafði undir höndum og sagði þær sýna repúblikana með 53 sæti gegn 47 í öldungadeildinni og um 220 sæti gegn 215 í fulltrúadeildinni.
Hann sagði því mikla ástæðu til að fylgjast með því hvort umfangsmikil kosningabarátta Trump og auknar fjárfestingar í bandarísku atvinnulífi myndu skila repúblikönum þeim stuðningi sem þeir þyrftu til að halda meirihluta sínum á þinginu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
