
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum í dag, um breytingar á valdahlutföllum í heiminum, samstarf Bandaríkjanna, Kína og Rússlands og baráttu stórveldanna gegn djúpríkinu og alþjóðlegum valdakjörnum. Í þættinum kom fram að Donald Trump, Vladímír Pútín og Xi Jinping hafa undirbúið nýja skipan heimsmála um árabil og nú sé það að verða sýnilegt. Íslenskir fjölmiðlar, sérstaklega RÚV, segðu almenningi ekki rétt frá því sem væri að gerast erlendis. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Trump, Pútín og XI Jinping að taka yfir pólitíska stjórn alþjóðakerfisins
Í þættinum var fjallað ítarlega um heimsókn Donald Trump til Kína og síðar heimsókn Vladímírs Pútíns til Xi Jinping. Kom fram að heimsóknirnar staðfestu að leiðtogar ríkjanna væru komnir í náið samstarf um framtíðarskipan heimsins og væru að taka yfir pólitíska stjórn alþjóðakerfisins.
Guðmundur sagði Trump hafa fengið sérstaka móttöku í Kína þar sem honum var meðal annars boðið inn í hið svokallaða „forboðna himnaríki“ þar sem fáir erlendir leiðtogar fá að ræða alþjóðamál í trúnaði við kínversk stjórnvöld. Þá sagði Guðmundur að Pútín hefði fengið sams konar móttökur og leiðtogarnir 3 væru að samræma stefnu sína um heimsmál, orkuviðskipti og áhrifasvæði stórveldanna.
Í þættinum kom fram að verið væri að byggja upp nýtt valdakerfi þar sem Bandaríkin, Kína og Rússland verði ráðandi stórveldi heimsins næstu áratugina ásamt Indlandi og Japan. Vísaði vara til umræðu um svokölluð „C5-ríki“ sem taki við af G7-ríkjunum sem helsta valdablokk heimsins.
Rússland og Kína hafa losað sig undan vestrænu fjármálakerfi
Guðmundur Franklín sagði Kína og Rússland hafa dregið stórlega úr áhrifum bandaríkjadollars í alþjóðaviðskiptum. Hann sagði 96% af viðskiptum ríkjanna tveggja fara fram í rúblum og júönum og þau hefðu byggt upp eigið millifærslukerfi eftir að Rússar voru útilokaðir frá SWIFT-kerfinu undir stjórn Joe Biden.
Í umræðunni kom einnig fram að Pútín og Xi Jinping skrifuðu undir um 40 viðskiptasamninga í heimsókn Pútíns til Kína, meðal annars um nýja gasleiðslu frá Síberíu til Kína sem kallast „Siberia 2“. Guðmundur Franklín sagði leiðsluna eiga eftir að flytja meira gas til Kína en eldri leiðslur frá Rússlandi. Kom fram að Kínverjar væru nú að gera stórfellda samninga um kaup á olíu frá Bandaríkjunum og Alaska og það væri hluti af nýju jafnvægi milli stórveldanna.
Djúpríkið hefur misst tökin
Í þættinum var einnig rætt um áhrif djúpríkisins sem stórveldin hafa unnið hörðum höndum við að hreinsa út. Um væri að ræða net stórfyrirtækja, fjármálastofnana, alþjóðlegra áhrifamanna og stjórnmálalegra valdakjarna sem hefðu haft áhrif á ríkisstjórnir Vesturlanda um áratugaskeið.
Guðmundur nefndi sérstaklega George Soros, Rothschild-fjölskylduna og Jeffrey Epstein í því samhengi og sagði slíka aðila hafa verið notaða til að ná tökum á stjórnmálamönnum með fjárhagslegum og persónulegum þrýstingi. Kom fram að bæði Pútín og Xi Jinping hafa hreinsað slíka aðila út úr sínum ríkjum og að Trump væri nú að gera það sama í Bandaríkjunum.
RÚV segir almenningi ósatt um þróun heimsmála
Guðmundur gagnrýndi Ríkisútvarpið harðlega í þættinum og sagði fréttaflutning stofnunarinnar um Rússland, Kína og Bandaríkin byggjast á áróðri og rangfærslum. Hann sagði íslenska fjölmiðla halda því fram að staða Rússa væri veik og Pútín hefði farið „með betlistaf í hendi“ til Kína þegar raunveruleikinn væri sá að stórveldin væru að samræma framtíðarstefnu sína.
Hann sagði almenning á Íslandi fá skakka mynd af alþjóðamálum vegna þess hvernig erlendar fréttir væru túlkaðar í íslenskum fjölmiðlum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
