
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum um stöðuna í Úkraínu og mögulegar friðarviðræður. Haukur sagði ekki útlit fyrir að Rússar hygðust gefa eftir á þeim landsvæðum sem þeir hafa náð undir sig og erfitt yrði að finna sameiginlegan samningsgrundvöll ef krafa Úkraínumanna væri að fá 25% þeirra aftur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Landsvæðin stærsta hindrunin
Arnþrúður vísaði til frétta um að Selenskí væri tilbúinn að semja um frið gegn því að Úkraína fengi 25% þeirra landsvæða til baka sem Rússar hafa tekið.
Haukur sagði að Úkraínumenn vildu fá Donbass-svæðin, Donetsk og Lúhansk, auk Saporisjzja og Kherson aftur undir stjórn sína.
Á þessum svæðum hefðu Rússar komið á eigin stjórnsýslu, lögum, lífeyrisgreiðslum og skólastarfi. Af því sem Haukur hefði heyrt í rússneskum fjölmiðlum, frá diplómötum og á ráðstefnum væri ekki útlit fyrir að rússnesk stjórnvöld ætluðu að bakka með þau landsvæði.
Odessa gæti haft hernaðarlegt vægi
Arnþrúður spurði einnig um Odessa og hvort Rússar gætu reynt að ná borginni og þar með loka aðgangi Úkraínu að Svartahafi.
Haukur sagði Rússa hernaðarlega geta reynt að ná Odessa og suðurhluta landsins en hann teldi ekki að það væri núverandi áætlun þeirra. Slík aðgerð gæti leitt til mikillar eyðileggingar í borginni.
Hann benti á að höfnin í Odessa væri mikilvæg fyrir inn- og útflutning og vopn hefðu einnig verið flutt þangað. Rússar hefðu ráðist á slíka flutninga en Úkraínumenn á móti beint drónaárásum að Svartahafsflota Rússa.
Öryggisbelti við Kharkiv
Arnþrúður spurði hvað Rússar gætu verið tilbúnir að gefa eftir ef friðarsamningar næðust.
Haukur sagði erfitt að sjá það fyrir en taldi að Rússar væru jafnframt að horfa til þess að koma upp öryggisbelti á Kharkiv-svæðinu.
Hann vísaði til drónaárása Úkraínumanna langt inn í Rússland, meðal annars til Moskvu, Múrmansk, Pétursborg og öðrum svæðum. Rússnesk stjórnvöld hefðu opinberlega rætt um nauðsyn slíks öryggisbeltis.
Staðan væri því flókin þar sem báðir aðilar gengju inn í mögulegar friðarviðræður með mjög ólíkar kröfur um landsvæði og öryggi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
