
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum í dag, um sveitarstjórnarkosningarnar í Bretlandi og þá djúpu kreppu sem ríkir undir stjórn Keirs Starmer. Í þættinum kom fram að Verkamannaflokkurinn stefndi í eitt stærsta afhroð sitt í áratugi og flokkurinn væri að hrynja í Wales, nær horfinn í Skotlandi og undir miklum þrýstingi innan eigin þingflokks. Kom fram að kosningarnar marki upphafið að pólitísku hruni ríkisstjórnar Starmer og að átök væru þegar hafin um eftirmann hans. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Barátta hafin um arftaka Starmer
Í þættinum kom fram að þingmenn og bakland Verkamannaflokksins væru byrjaðir að undirbúa leiðtogaskipti vegna versnandi stöðu flokksins. Angela Rayner, Andy Burnham og Wes Streeting voru nefnd sem líklegir arftakar ef Starmer yrði hrakinn frá embætti eftir kosningarnar.
Guðmundur sagði stuðning við ríkisstjórnina hafa hrunið vegna efnahagsmála, orkustefnu, innflytjendamála og aukinnar óánægju meðal almennings með þróun samfélagsins. Starmer hefði þó lýst því yfir að hann hygðist ekki segja af sér þrátt fyrir versnandi stöðu flokksins.
Orkumál og innflytjendamál í miðju gagnrýninnar
Í þættinum kom fram að stjórn Starmer hafi lokað fyrir frekari olíu- og gasvinnslu í Norðursjó og stöðvað uppbyggingu við Aberdeen. Bretland neyðist því til að kaupa gas og olíu á hærra verði frá öðrum ríkjum á sama tíma og orkukostnaður heimila hækkar hratt.
Einnig var rætt um mikla fjölgun hælisleitenda og ólöglegra innflytjenda til Bretlands. Guðmundur tengdi þá þróun við aukningu nauðgana, hnífaárása og annarra ofbeldisbrota og sagði samfélagsástandið hafa versnað verulega síðustu ár.
Gagnrýni á ESB-áhrif og skerðingu tjáningarfrelsis
Í þættinum kom fram að ríkisstjórn Starmer væri að innleiða reglur Evrópusambandsins inn í breskt stjórnkerfi þrátt fyrir Brexit. Guðmundur sagði almenning hafa áttað sig á þeirri þróun og hún hefði aukið andstöðu við ríkisstjórnina. Þá var einnig rætt um stöðu tjáningarfrelsis í Bretlandi. Guðmundur sagði stjórnvöld handtaka þúsundir manna vegna ummæla á internetinu og eftirlit með samfélagsmiðlum hefði aukist verulega undir stjórn Starmer.
Einnig var rætt ítarlega um Mandelson hneykslið en heyra má nánar um það í þættinum.
