Hjálpar og neyðarkall frá kúrdísku þjóðinni

Skrifað af Salah Karim Mahmood.

Sæl verið þið

Brýnt hjálpar- og neyðarkall frá kúrdísku þjóðinni til ríkisstjórnar og þjóðar Íslands sem lengi hafa staðið vörð um mannúð og réttindi hinna varnarlausu.

Kerfisbundin kúgun í heila öld

Við sem Kúrdar á Íslandi stígum fram fyrir ykkur sem íslenskir borgarar með kúrdískar rætur og beinum orðum okkar til ykkar af fullri virðingu og ábyrgð. Hér flyt ég ykkur alvarlegt og einlægt ákall. Kúrdar eru þjóð sem telur yfir 50 milljónir en hefur í heila öld sætt kerfisbundinni kúgun í Írak, Tyrklandi, Íran og Sýrlandi.

Ný bylgja ofbeldis og útrýmingar

Nú stöndum við frammi fyrir nýrri bylgju ofbeldis og útrýmingar í Rojava, Vestur-Kúrdistan. Eftir fall Assad-stjórnarinnar hefur Mohammad Jolani sem heitir einnig Ahmed al Sharaa, fyrrverandi ISIS-leiðtogi Al Nusra, tekið völd í Sýrlandi. Þrátt fyrir fortíð hans sem hættulegs morðingja og að stórt fé var sett á höfuð hans í Bandaríkjunum áður en Donald Trump skipti um skoðun og náðaði hann fyrir glæpi hans og alvarlega fortíð ásamt þeim áhyggjum sem sumir hafa lýst yfir um að hann gæti snúið aftur til fyrri öfgastefnu!

Hersveitir hafa ráðist á kúrdísk hverfi í Aleppo og drepið fjölda óbreyttra borgara

Í dag virðast vestræn ríki styðja stjórn hans, ótrúlegt en satt! Undanfarna daga hafa hersveitir hans ráðist á kúrdísk hverfi í Aleppo, Hasaka og Qamishlu, sprengt hús og drepið fjölda óbreyttra borgara þar á meðal þá sem börðust gegn ISIS. Þetta eru hefndaraðgerðir gegn Kúrdum fyrir baráttu þeirra gegn hryðjuverkum – baráttu sem Ísland á einnig sinn þátt í með falli íslensks sjálfboðaliða Hauks Hilmarssonar.

Öfgamenn við völd

Í þessum hverfum, borgum og bæjum búa óbreyttir borgarar, konur, karlar, börn og eldra fólk varnarlaust án matar og drykkjar í vetrarkuldanum. Þeir sem nú fara þar með völd eru öfgamenn með rætur í ISIS þótt þeir reyni að hylja fortíð sína. Sönnunargögn benda til miskunnarlausra kerfisbundinna árása á Kúrda þar á meðal konur, börn og aldraða.

Ég bið ykkur, kæru landsmenn, góða fólkið, aðgerðasinnar, Alþingi Íslands, ríkisstjórn Íslands og aftur þið kæru landsmenn, að fordæma þessar aðgerðir og þrýsta á alþjóðasamfélagið að tryggja öryggi Kúrda og rétt þeirra til að snúa heim og stjórna eigin nærumhverfi.

Þakka ykkur fyrir.

Megi Ísland ávallt standa með friði og mannréttindum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila