Eftirfarandi færsla birtist á bloggi Kristínar Ingu Þormar á blog.is
Bandarískar miðstöðvar fyrir sjúkdómseftirlit og forvarnir (CDC) hafa greint frá átta tilfellum af hjartavöðvabólgu, hugsanlega banvænni tegund, hjá grunnskólanemum sem fengu Pfizer sprautu.
Til og með 10. desember sagði CDC að það hefðu borist 14 tilkynningar um hjartavöðvabólgu meðal barna á aldrinum 5-11 ára sem fengu sprautuna. Þar af sagði það að átta tilfelli – þar sem fjórar drengir og fjórar stúlkur tóku þátt – uppfylltu „vinnutilviksskilgreiningu“ stofnunarinnar á bólgunni.
Af þessum 14 tilkynntu tilfellum er verið að fylgjast með 5. Af þessum 8 sem voru staðfest af CDC, þá komu 6 börn sem fengu seinni skammtinn af Pfizer, sem er eina leyfða „bóluefnið“ fyrir þennan aldurshóp.
Skýrslurnar voru birtar á fimmtudaginn meðal 3.233 annarra aukaverkana eftir bólusetningu sem tilkynntar voru til VAERS.
Sjá hér.
Hér á Íslandi
Faraldurinn valdi mikilli röskun á lífi barna segir Þórólfur
„Veiran getur valdið mikilli röskun á daglegu lífi þessara barna. Menn hafa haft miklar áhyggjur af því að það geti líka haft varanleg og slæm áhrif á börnin svo það er fyllsta ástæða til þess að reyna koma í veg fyrir það. Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barnanna sjálfra.“ (Áherslan er mín)
Er hann að hugsa um hag barnanna sem hafa hvorki getað stundað eðlilegt skóla- eða félagslíf í bráðum 2 ár núna, og þau eldri neydd til að nota grímur?
Gengst við því að hafa gert of mikið úr veikindum barna
Þórólfur er ekki vanur því að fá neina gagnrýni á málflutning sinn og virðist aldrei beðinn um gögn máli sínu til sönnunar í hvert skipti sem hann segir að „nýjar upplýsingar“ eða „nýjar rannsóknir“ bendi til einhvers.
En það er sem betur fer að breytast núna, enda löngu kominn tími til.
Sóttvarnalæknir bregst við ábendingum
Frosti Sigurjónsson birti grein á vefsíðu sinni 17. desember sem segir meðal annars þetta:
Það er virðingarvert af sóttvarnalækni að viðurkenna mistök í forsendum bólusetningar barna og birta leiðréttingu. Hann breytir reyndar ekki niðurstöðu sinni þótt honum sé ljóst að áhætta barna af sjúkdómnum sé helmingi minni en hann taldi áður og vörn bóluefnisins gegn smiti sé ekki 90% eins og hann taldi.
19 dauðsföll barna og unglinga sem höfðu verið sprautuð með Pfizer
Bandaríski VAERS gagnagrunnurinn heldur utanum tilkynntar aukaverkanir og andlát eftir bólusetningar, og í þessari frétt má sjá sundurliðaðar tilkynningar um 19 dauðsföll barna og unglinga.
Allar neðantaldar 19 tilkynningar eru teknar úr VAERS gagnagrunninum í Bandaríkjunum yfir aukaverkanir vegna Covid bólusetninga. Allar tilkynningarnar voru birtar núna í desember 2021 og eiga það sameiginlegt að öll börnin dóu eftir að þau voru sprautuð með mRNA tilraunalyfinu frá Pfizer.
Meðfylgjandi hverju tilviki er lýsing úr skýrslu. Það athugast að orðalag í skýrslum er ekki hefðubundið heldur meira í „skeytastíl“ og oft á „læknamáli“ og geta lýsingarnar hér á eftir verið undarlega orðaðar og stundum ófullkomnar. Reynt var að tryggja að íslenska orðalagið hefði ekki áhrif á merkinguna. Hlekkir á viðkomandi tilkynningu í VAERS fylgir hverju tilviki.
Þann 31. ágúst var búið að tilkynna um 33 aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum eftir sprauturnar hér á Íslandi, og samkvæmt frétt 8. september var þá búið að tilkynna um 6 alvarlegar aukaverkanir hjá þessum aldurshópi.
Getum við ekki öll sammælst um að leyfa 5-11 ára börnum að njóta vafans og sleppa þeim við þessar „bólusetningar“?