
Morgunblaðið hefur allt frá stofnun árið 1913 verið áhrifamikill þáttur í íslensku þjóðlífi, sérstaklega í málum hvað varðar sjálfstæði, fullveldi og varnarmálum Íslands.
Blaðið hefur sýnt þessum málefnum stuðning með ýmsum hætti m.a. með pólitískum leiðarum, stuðningi við varnar- og öryggissamstarf við Bandaríkin, hvatningu til varfærni gagnvart erlendum áhrifum, verndun tungumáls og menningar og áherslu á stjórnarskrárbundna sjálfstjórn Íslands.
Áratugum saman hafa áhrifamiklir ritstjórar og leiðarahöfundar, einkum Styrmir Gunnarsson og Davíð Oddsson, haldið uppi vörnum fyrir fullveldið í ritum sínum og gagnrýnt allt sem þeir töldu því ógna. Þetta hefur oft komið skýrt fram í leiðurum, skoðanagreinum og ritstjórnarfyrirsögnum sem mótað hafa almenna umræðu.
Undanfarið hefur Morgunblaðið hins vegar borið keim af áróðri í anda Samfylkingar og Viðreisnar.
1. desember 2025
Í dag halda landsmenn upp á fullveldisdaginn, 1. desember. Þrátt fyrir að dagurinn sé flaggdagur og í raun þjóðhátíðardagur, er hann ekki lögbundinn frídagur í dag sem er miður.
Nú bregður svo við að Morgunblaðið minnist ekki einu orði á fullveldisdaginn. Ekki eitt einasta orð.
Hins vegar birtir blaðið skilaboð frá utanríkisráðherra Íslands til Zelenskýs og fylgisveina hans í Úkraínu (sem hafa þó farið hríðfækkandi vegna spillingarmála) þar sem hún bendir honum kurteislega á að „skipting gæða sé ekki leikur þar sem einn vinnur og annar tapar. Sagan sé lifandi dæmi um að svo sé ekki. Alþjóðasamstarf, í bland við innlenda krafta, sé það sem muni tryggja fullveldi (Íslands) næstu hundrað árin og til framtíðar.“
Það sama hlýtur að gilda um Úkraínu, sem að sögn hennar stendur nú vörð um lýðræðið, sjálfstæði og fullveldi Íslands.
Veit Pútín af þessu?
