Hvað sagði Kristrún um ESB fyrir síðustu alþingiskosningar

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu á Útvarpi Sögu í dag, um ummæli Kristrúnar Frostadóttur fyrir alþingiskosningar í nóvember 2024 í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur. Kristrún hafi sagt aðspurð að málefni ESB yrðu ekki á dagskrá á næsta kjörtímabili ef hún tæki við stjórn landsins. Rætt var um þær umbreytingar sem hafi átt sér stað á málefnaskrá Kristrúnar nú í dag samanborið við það sem hún hafi sagt fyrir kosningar. Rifjað var upp þar sem Kristrún hafi fullyrt að forgangsmálin á komandi kjörtímabili yrðu efnahagsmál, ríkisfjármál og heilbrigðismál en ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Í þættinum var spilað brot úr viðtalinu frá nóvember 2024 þar sem Kristrún lagði áherslu á að ekki yrði tekin afgerandi ákvörðun um Evrópusambandsmál á komandi kjörtímabili og að forgangur ríkisstjórnar yrði að styrkja stöðu ríkissjóðs, bæta heilbrigðiskerfið og takast á við efnahagsvanda. Hljóðbrotið má heyra hér að neðan.

Áherslubreyting hjá Kristrúnu á síðustu vikum

Arnþrúður og Pétur bentu á að eftir að Kristrún Frostadóttir tók við embætti forsætisráðherra í lok árs 2024 hefði hún ekki talað um aðildarviðræðum við ESB lengst af árinu 2025 en það hefði hinsvegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra gert fljótlega eftir kosningar. Þegar síðasta ár væri skoðað í heild þá hefði í raun utanríkisráðherra yfirtekið umræðuna og haldið ESB aðild Íslands mjög á lofti en umræða um aðgerðir ríkisstjórnarinnar um efnahagsmál og heilbrigðismál hefðu varla komist á blað.

Þingsályktunartillaga verður lögð fram í næstu viku

Ræddu Arnþrúður og Pétur að nú væri umræðan hávær um aðild að ESB og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og væri vitnað í yfirlýsingar Kristrúnar Frostadóttur í erlendum fjölmiðlum um að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram á næstu mánuðum á Íslandi. Íslenska þjóðin hafi lítið sem ekkert fengið að vita um frekari ákvarðanir ríkissstjórnarinnar en Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar sagði í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu síðasta mánudag þann 23. febrúar að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra yrði lögð fram á Alþingi í „næstu viku“ ( 2-7 mars n.k.)

Þau ræddu að þau mál sem Kristrún hefði nefnt sem forgangsmál fyrir kosningar, efnahags og heilbrigðismál væru nú ekki í forgrunni opinberrar umræðu á sama hátt og Evrópusambandsmálið, heldur þvert á móti séu það þau mál sem sitja á hakanum.

Velta fyrir sér ástæðum stefnubreytingar Kristrúnar

Í þættinum veltu Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson því fyrir sér hvers vegna þessi áherslubreyting hefði orðið svo skömmu eftir kosningar. Þau bentu á að ummælin frá nóvember 2024 hefðu verið afdráttarlaus og að breyting á áherslum í kjölfarið vekti spurningar um stefnumótun ríkisstjórnarinnar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila