Hvað þarf eitt risastórt gagnaver mikla raforku?

Júlíus Valsson skrifar:

Eitt gagnaver, fimmtungur Kárahnjúkavirkjunar

Hver ákvað að íslensk náttúra ætti að fylgja eftirspurn gagnavera eftir rafmagni?

Það byrjar yfirleitt á saklausri frétt um byggingarleyfi. Nýtt atvinnuhúsnæði hefur fengið grænt ljós. Fjárfesting er fram undan og sveitarfélagið fær ástæðu til að gleðjast. Síðan kemur talan sem hefði átt að standa í fyrirsögninni: 120 megavött.

Nýja gagnaver Verne á Ásbrú, VDC04, verður tæplega 24 þúsund fermetrar. (Til samanburðar er Græna gímaldið“ við Álfabakka 2A í Breiðholti er um 11.500 fermetrar að flatarmáli.) Byggingaráformin voru samþykkt í september s.l.. Í opinberum framkvæmdagögnum kemur fram að aflþörf tölvukerfanna verði allt að 120 MW. Kæling og aðrir innviðir bætast við. Fyrirhugaðir eru þrír 40 MW áfangar.

Þetta er því gríðarstór nýr raforkunotandi sem verið er að undirbúa við hlið núverandi starfsemi fyrirtækisins.

Fimmtungur Kárahnjúkavirkjunar

Tölvukerfi sem taka 120 MW samfellt allt árið nota um 1.051 gígavattstund. Til samanburðar gefur Landsvirkjun upp árlega orkuvinnslugetu Fljótsdalsstöðvar, aflstöðvar Kárahnjúkavirkjunar, sem 5.150 gígavattstundir.

Við þessar forsendur gætu tölvukerfi þessa eina nýja gagnavers því notað rúmlega fimmtung af ársorkuvinnslugetu Kárahnjúkavirkjunar. Heildarnotkunin yrði meiri þegar kælingin væri talin með.

Raunnotkun ræðst auðvitað af því hve hratt gagnaverið fyllist og hversu mikið álagið verður. En þegar sótt er um aðstöðu fyrir slíka aflþörf verður að ræða afleiðingarnar miðað við að hún verði nýtt. Annars er verið að samþykkja framkvæmdina en láta samfélagið uppgötva stærð hennar síðar.

Vindmyllurnar fylgja í kjölfarið

Hvað þyrfti margar stórar vindmyllur til að framleiða samsvarandi ársorku?

Sé miðað við 7,2 MW vindmyllur, sem geta náð um 250 metra heildarhæð, og 40–% nýtingarhlutfall, verður svarið 34–42 vindmyllur fyrir þetta gagnaver. Hæðin og aflið eiga sér stoð í tæknilýsingu Vestas; nýtingarhlutfallið er hér reikniforsenda sem þyrfti að sannreyna fyrir viðkomandi virkjunarstað.

Þá er kælingin ekki reiknuð með inn í dæmið.

Vindmyllurnar framleiða heldur ekki raforku jafnt allan sólarhringinn. Gagnaver þarf öruggt rafmagn, jafnvel í logni. Vatnsaflið og miðlunarlónin verða því verðmætari sem bakhjarl þegar vindmyllum fjölgar.

Þarna birtist þrýstingurinn á að reisa vindmyllur um landið og virkja hverja sprænu. Hann þarf ekki að koma fram í byggingarleyfi gagnaversins. Hann getur birst síðar sem krafa um aukið raforkuframboð og viðvörun um að atvinnulífið fái ekki orku.
Fyrst fagna menn eftirspurninni. Svo þarf að svara fyrir náttúruna.

Hver fær að ákveða orkuþörf landsins?

Gagnaver geta skapað verðmæti og störf. Það leysir stjórnvöld ekki undan því að meta hvort tiltekin uppbygging sé skynsamleg fyrir landið í heild.

Raforkan er takmörkuð auðlind. Þegar stór nýr notandi bætist við minnkar svigrúmið til annarrar notkunar, nema framleiðsla aukist eða sparnaður komi á móti. Þá verður að spyrja hvaða starfsemi eigi að ganga fyrir og hvaða náttúruspjöll samfélagið sé tilbúið að samþykkja vegna hennar.

Byggingarleyfi á Ásbrú getur þannig orðið hluti af þrýstingi á landslag langt frá Reykjanesi. Íbúar annars staðar fá þá að heyra að vindmyllugarður eða ný vatnsaflsvirkjun sé nauðsynleg vegna vaxandi orkuþarfar. Sú þörf varð þó til við ákvarðanir sem þeir komu hvergi nærri.

Ísland þarf opinbera stefnu um ráðstöfun raforkunnar áður en ný eftirspurn verður að pólitísku neyðarástandi. Orkumálaráðherra hefur enn ekki drattast til að tryggja forgangraforku til heimila og smærri fyrirtækja þvert á loforð sín, nema í neyðartilvikum sem ESB skilgreinir sem slík. Fyrirtæki eiga að geta kynnt áform sín. Stjórnvöld verða að geta metið þau án þess að líta á hvert megavatt sem pöntun á næstu virkjun.

Annars verður framtíðarskipulag landsins með þeim hætti að það verða gagnaverin og eigendur þeirra sem ákveða orkuþörfina.

Íslensk náttúra fær svo reikninginn.

Hver græðir?

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila