
Júlíus Valsson skrifar:
Haustið 1986 hittust Reagan og Gorbatsjov í Höfða. Reykjavík varð ekki fyrir valinu af tilviljun. Ísland var að sönnu í Atlantshafsbandalaginu, en það var herlaust smáríki sem hvorugt stórveldanna taldi sér stafa ógn af. Það traust var líklega dýrmætasta eign íslenskrar utanríkisþjónustu, þótt hvergi sæist hún í fjárlögum. Fjörutíu árum síðar er hætt við að hún sé töpuð. Og íslenska þjóðin var aldrei spurð.
Tveir árásargjarnir utanríkisráðherrar
Tveir utanríkisráðherrar eiga þar stærstan hlut að máli. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir lokaði sendiráðinu í Moskvu sumarið 2023. Ákvörðunin var kynnt eins og hún væri sjálfsögð. Með henni skar Ísland á einu beinu boðleið sína til Kremlar, á sama tíma og stríð geisaði í Evrópu og meiri þörf var á samtali en nokkru sinni. Í ráðherratíð hennar tók Ísland einnig að leggja fé til skotfærakaupa handa Úkraínu. Þjóð sem um áratugaskeið hafði talið sér til tekna að eiga engin vopn og versla ekki með þau varð þar með þátttakandi í vopnaviðskiptum. Alþingi var aldrei beðið um að taka sérstaka afstöðu til þeirrar stefnubreytingar.
Rétt er að halda einu til haga. Stuðningur við Úkraínu jafngildir ekki stríðsyfirlýsingu samkvæmt þjóðarétti, og innrás Rússa var skýlaust brot á alþjóðalögum. En smáríki lifir ekki á lagatæknilegum skilgreiningum. Það lifir á því hvernig aðrir líta á það. Utanríkisráðherra sjálfstæðs ríkis er ekki hver sem er. Orð hans og athafnir eru í nafni þjóðarinnar. Í Moskvu er Ísland nú talið í hópi andstæðinga, og þaðan verður ekki auðveldlega snúið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur haldið lengra á sömu braut, og ferðinni er heitið til Brussel. Í maí 2025 undirritaði hún yfirlýsingu um að EFTA-ríkin innan EES samræmdu afstöðu sína til alþjóðamála við Evrópusambandið. Í mars á þessu ári handsalaði hún svo samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál við Kaju Kallas, utanríkismálastjóra sambandsins. Ráðuneytið flýtti sér að fullvissa landsmenn um að yfirlýsingin væri óskuldbindandi. Í Brussel var hún lesin á annan veg, sem tækifæri til að draga Ísland inn í varnariðnaðaráætlanir sambandsins.
Ísland er ekki i ESB
Þar liggur kjarni málsins. Óskuldbindandi yfirlýsing þarfnast hvorki samþykkis Alþingis né þjóðarinnar. Hún skapar þó samráðsvettvang, væntingar og pólitíska stefnu sem erfitt er að víkja frá síðar. Þannig má færa utanríkisstefnu landsins jafnt og þétt inn í farveg Evrópusambandsins án þess að nokkur lög séu sett.
Þjóðin hafnaði því 29. ágúst að hefja aðildarviðræður á ný. Utanríkisráðherra tilkynnti Brussel samviskusamlega um niðurstöðuna. Í sama bréfi lýsti hún vilja til að efla samstarfið um öryggis- og varnarmál. Kjósendur mega vel velta því fyrir sér hvað þeir voru eiginlega að kjósa um.
Dýrt spaug fyrir Ísland að gera sig að skotmarki
Þessi stefna hefur líka verðmiða. Árið 2015 lokuðu Rússar markaði sínum fyrir íslenskum sjávarafurðum í kjölfar þess að Ísland gekk til liðs við þvingunaraðgerðir Vesturlanda. Sá skellur varð að vísu fyrir tíð þessara tveggja ráðherra. Hann hefði þó átt að kenna þeim að utanríkisstefna smáríkis er aldrei ókeypis. Reikninginn greiddu sjávarbyggðirnar, sem höfðu lítið um málið að segja.
Alvarlegri er þó sú hætta sem blasir við á hafsbotni. Nánast öll fjarskipti Íslands við umheiminn fara um fáeina sæstrengi. Á undanförnum árum hafa strengir í Eystrasalti og víðar orðið fyrir skemmdum sem erfitt hefur reynst að rekja, en fáir efast um hvaðan þær komu. Fjölþáttaógnir af þessu tagi beinast að ríkjum sem talin eru í hópi andstæðinga. Ísland hefur engan her til að verja strengi sína og á allt sitt undir öðrum í þeim efnum. Það er hættuleg staða fyrir ríki sem hefur sjálft kosið að gera sig að skotmarki.
Alþingi á að hafa síðasta orðið, ekki ráðherrann, ekki Brussel
Enginn krefst þess að Ísland snúi baki við bandamönnum sínum. Krafan er einfaldari og gamaldags. Stefnubreytingar sem varða öryggi þjóðarinnar eiga heima á Alþingi, í opinni umræðu og með atkvæðagreiðslu, en ekki í fréttatilkynningum frá Brussel. Ráðherra sem undirritar stefnu fyrir hönd þjóðar sinnar þarf umboð til þess.
Höfði stendur enn á sínum stað. Spurningin er hvort nokkur myndi í dag láta sér detta í hug að halda þar fund.
