Hverju reiðist almenningur í ESB?

Júlíus Valsson skrifar:

Það er yfirleitt hægt að útskýra hverja einstaka reglu Evrópusambandsins. Að baki henni liggur göfugt markmið og vönduð greinargerð. Vanamálin koma þó fyrst í ljós þegar allar reglurnar koma saman á sama eldhúsborðinu.

Þar liggur orkureikningurinn og afborgunin af húsnæðisláninu. Húsaleigan hefur hækkað gífurlega. Launin endast mun skemur. Sá sem situr við borðið hefur takmarkað gagn af því að hver hækkun eigi sér rökrétta skýringu í einhverju ráðuneytinu.

Mótmælin í Frakklandi og aðgerðir flutningabílstjóra á Ítalíu sýna þessa spennu. Dýrtíð og óánægja með opinbera þjónustu hafa knúið fólk út á göturnar. Kröfurnar eru mismunandi og ábyrgð landsstjórnanna mikil. Samt verður æ erfiðara að ræða vandann án þess að spyrja hvaða þátt sameiginleg stefna ESB eigi í honum.

Sameiginleg stefna ESB er rót vandans

Skýrasta viðurkenningin á vandanum kemur frá framkvæmdastjórn ESB sjálfri. Hún hefur sett sér markmið um að minnka stjórnsýslubyrði fyrirtækja um að minnsta kosti 25% og um 35% hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Þetta eru rausnarleg fyrirheit. Þau vekja líka óþægilega spurningu: Hvernig varð byrðin svona þung?

Sameiginlegar reglur geta auðveldað viðskipti. Ávinningurinn rýrnar þó þegar smáfyrirtækið þarf að kaupa sérfræðiaðstoð til að skilja reglurnar og sínar skyldur. Stórfyrirtækið hefur stofnað sérstaka deild til að sinna slíku veseni. Litli atvinnurekandinn sinnir því eftir vinnu og bölvar í hljóði.

Regluverk sem á að jafna samkeppnisstöðu getur þannig veitt þeim stærstu forskot. Stórfyrirtækin hafa efni á að uppfylla kröfurnar og fylgjast með breytingunum. Hinir velta fyrir sér hvort reksturinn sé fyrirhafnarinnar virði.

Kostnaður vegna „loftslagsmála“ sligar fyrirtækin

Svipaður árekstur blasir við í loftslagsmálum. Nýja losunarheimildakerfið ETS2 nær til eldsneytis í vegasamgöngum og til húshitunar og á að verða að fullu virkt árið 2028. Það kerfi skýrir þó ekki að öllu leyti dýrtíð dagsins. Það sýnir hins vegar hvað bíður handan við hornið.

Fjölskylda í dreifbýli getur sjaldnast svarað hærra eldsneytisverði með því að taka lest sem gengur hvergi. Sá sem hefur tæpast efni á viðgerð á gamla bílnum kaupir sér ekki endilega rafbíl vegna þess að stjórnvöld hafa gert bensínið dýrara. Íslendingar geta ekki tekið lest til Brussel eins og þeir virðast halda þar á bæ!

Þarna getur skynsamlegt umhverfismarkmið misst stuðning. Reikningurinn kemur áður en valkosturinn er tiltækur og almenningur hristir hausinn yfir heimskunni.

Kjósandinn á síðasta orðið, eða þannig…

Fjármálareglur ESB halda áfram að byggjast á viðmiðum um 3% ríkishalla og 60% opinberar skuldir miðað við landsframleiðslu, þótt aðlögunarleiðir ríkjanna séu mismunandi. Reglunum er ætlað að tryggja stöðugleika. Skuldir og vaxtakostnaður myndu líka setja stjórnvöldum skorður án þeirra.

Pólitíski vandinn verður til þegar kjósendum er lofað bættri þjónustu en þeim síðan sagt að svigrúmið sé bundið sameiginlegum skuldbindingum innan ESB. Ríkisstjórnirnar hafa sjálfar tekið þátt í ákvörðununum. Heima fyrir verður Brussel samt gjarnan hentugur blóraböggull.

Kjósandinn stendur eftir með atkvæðaseðilinn og spyr sjálfan sig að því hversu miklu hann geti breytt.

Óánægja með reglurnar styrkir stjórnmálaflokka sem krefjast aukins ákvörðunarvalds heima fyrir. Haldi dýrtíðin áfram má búast við meiri þrýstingi um undanþágur og hægari framkvæmd kostnaðarsamra breytinga.

Þar rís undiraldan. Traustið veikist þegar stjórnmálin virðast eiga mun auðveldar með að útskýra hvern reikning sem fer sífellt hækkandi en geta þó ekki lækkað hann.

Kjósendur í ESB munu gera vaxandi kröfur um færri reglur, einfaldari eyðublöð og heiðarlegri og hugrakkari stjórnmálmenn sem bera hag almennings fyrir brjósti fremur en hag ESB.

Það sama gildir að sjálfsögðu einnig hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila