
Júlíus Valsson skrifar:
Sænski dálkahöfundurinn Richard Swartz segir í Dagens Nyheter frá því að hann hafi nýlega fundið svissneskan fimm franka pening frá 1976 við tillekt heima hjá sér. Á sjöunda áratugnum kostaði hann tæpar sex sænskar krónur, árið 1976 rúmar sextán og nú rúmar sextíu.
Swartz dregur þá ályktun að velgengni þjóðar skili sér til lengdar í sterkum gjaldmiðli. Það kann að segja eitthvað um hálfa öld, en minna um síðustu átta mánuði.
Sveiflur sænsku krónunnar
Í fyrra styrktist sænska krónan um nærri fimmtung gagnvart Bandaríkjadal og stóð sig best G10-gjaldmiðla. Nú er hún neðst. Evran kostaði rúmar 10,50 krónur í febrúar en um 11,35 í lok september. Krónan hefur einnig fallið um tólf prósent gagnvart þeirri norsku.
Meginskýringin er vaxtamunur. Sænski seðlabankinn heldur stýrivöxtum í 1,75%, en innlánsvextir Seðlabanka Evrópu eru 2,50% og vextir Englandsbanka 3,75%. Fjárfestar geta því tekið sænskar krónur að láni og keypt mynt sem ber hærri vexti. Íslendingar þekkja slík viðskipti frá árunum fyrir 2008.
Hærra olíuverð kemur líka illa við Svíþjóð, sem flytur olíu inn, en styrkir hins vegar Noreg. Krónan er auk þess lítill gjaldmiðill sem fjárfestar losa sig gjarnan við þegar áhættufælni eykst. Miklar skuldir heimila og stór fasteignamarkaður auka viðkvæmnina.
Seðlabanki Svíþjóðar sér þó enga kreppu. Hagvöxtur hefur verið meiri en búist var við og verðbólga hófleg.
Evran hefur líka fallið
Evran, sem sænska krónan hefur veikst gagnvart, er sjálf að falla gagnvart öðrum stórum gjaldmiðlum. Í byrjun október fór hún niður í um 17 mánaða lágmark gagnvart Bandaríkjadal og hafði lækkað um 4,5% frá áramótum. Hún hefur einnig veikst gagnvart svissneskum franka og breska pundinu.
Hærra olíu- og gasverð hefur haft slæm áhrif á viðskiptakjör Evrópu og skuldastaða Frakklands hefur valdið óróa á skuldabréfamörkuðum. Franskir tíu ára vextir hafa farið úr um 3,2% í febrúar í nær 5%. Vaxtamunur gagnvart Bandaríkjunum hefur jafnframt snúist dollaranum í hag.
Evran sýnir því að stór mynt sleppur ekki undan lögmálum vaxta, skulda, orkuverðs og fjármagnsflæðis.
Spegilmyndin á Íslandi
Á Íslandi eru stýrivextir 8% og verðbólga 5,9%. Evran kostaði rúmar 147 krónur um áramót en nú um 137. Íslenska krónan hefur því styrkst um rúm sjö prósent.
Þjóð með nær sex prósenta verðbólgu á þannig gjaldmiðil sem styrkist, meðan bæði sænska krónan og evran veikjast gagnvart ýmsum öðrum gjaldmiðlum. Gengið segir nú meira um verð á peningum, fjármagnsflæði og áhættumat en raunverulegan styrk hagkerfisins.
Fyrir 2008 streymdi erlent fé í íslensk krónubréf vegna vaxtamunar. Gengið hækkaði uns áhættuviljinn hvarf. Nú hafa erlend kaup á ríkisbréfum aftur aukist og raungengi krónunnar er með því hæsta sem mælst hefur á öldinni.
Íslenska glerskálin
Árið 1976 kostaði fimm franka peningurinn um 3,65 nýkrónur miðað við myntbreytinguna 1981. Nú kostar hann rúmar 730 krónur. Verðið hefur tvöhundraðfaldast!
Sænska krónan kostaði þá um 42 aura í núverandi íslenskri mynt en kostar nú rúmar tólf krónur. Myntin sem Swartz syrgir er því harður gjaldmiðill í augum Íslendinga.
Þar vandast kenningin um að veik mynt sé merki um afturför. Á sömu hálfu öld komst Ísland í hóp tekjuhæstu ríkja heims. Langtímagengi mælir fyrst og fremst mismun á verðbólgu. Sviss hélt henni í skefjum, en íslensk verðbólga fór yfir 80% árið 1983.
Hvað getum við lært?
Sænska dæmið kennir okkur hógværð gagnvart genginu. Traustur ríkissjóður ver lítinn gjaldmiðil illa þegar vaxtamunur snýst gegn honum. Evran sýnir að stór mynt sleppur þó ekki undan sömu lögmálum.
Íslenska styrkingin getur því snúist hratt. Sænska krónan fór úr efsta sæti G10 í það neðsta á fáeinum mánuðum án þess að sænskt efnahagslíf hryndi. Íslenska krónan er miklu minni mynt á grynnri markaði.
Þyngsti lærdómurinn liggur þó í glerskálinni. Frankinn er sterkur vegna hálfrar aldar aga í peningamálum og ríkisfjármálum. Á Íslandi hefur verðbólga verið yfir markmiði samfleytt í rúm sex ár.
Swartz getur enn borgað með fimm franka peningnum frá 1976. Íslenskur fimm króna peningur frá sama ári jafngildir fimm aurum, og aurarnir hurfu árið 2003.
Spurningin er nú þessi:
Hvað þarf til að peningur haldi gildi sínu í sömu glerskál í hálfa öld?
