
Guðmundur Franklín Jónsson skrifar:
Marine Le Pen nýtur nú gríðarlegs fylgis í Frakklandi og Alice Weidel og AfD sækja hratt fram í Þýskalandi. Þetta eru ekki jaðarríki Evrópu. Frakkland og Þýskaland eru sjálfir burðarásar Evrópusambandsins. Án þeirra er ekkert ESB í þeirri mynd sem við þekkjum.
Alice Weidel hefur nú sagt skýrt að ríkisstjórn undir forystu AfD myndi:

Koma Þýskalandi út úr evrunni

Yfirgefa Schengen

Loka landamærunum

Endurheimta fullveldi Þýskalands
Marine Le Pen og Þjóðfylkingin vilja sömuleiðis brjóta niður núverandi yfirþjóðlegt valdakerfi Brussel, endurheimta frönsk landamæri og færa valdið aftur frá ESB til þjóðríkjanna. Le Pen hefur að vísu horfið frá formlegri stefnu um Frexit og úrsögn úr evrunni, en stjórnmálastefna hennar myndi gjörbreyta ESB innan frá.
Hvers vegna ríkir þá nánast algjör þögn um þetta á RÚV?
Hvers vegna er íslensku þjóðinni sagt að ESB sé traust, stöðugt og óumbreytanlegt framtíðarverkefni þegar kjósendur í tveimur mikilvægustu ríkjum sambandsins eru í vaxandi mæli að hafna evrunni, Schengen og miðstýringu Brussel?
Hvers vegna er ekki rætt um hvað yrði um ESB ef Le Pen og Weidel næðu raunverulegum völdum í Frakklandi og Þýskalandi?
Og hvers vegna á Ísland að flýta sér inn í samband sem sjálfir burðarásar þess eru farnir að gera uppreisn gegn?
Við eigum að afhenda Brussel fullveldið, fiskimiðin, orkumálin og gjaldmiðilinn — á sama tíma og milljónir Frakka og Þjóðverja krefjast þess að fá þessi völd aftur heim.
Þetta er ein stærsta pólitíska frétt Evrópu. En íslenska ríkisútvarpið virðist ekki hafa áhuga.
Er hlutverk RÚV að upplýsa þjóðina um þróun mála í Evrópu — eða að vernda þá glansmynd af ESB sem íslenskir aðildarsinnar vilja halda að þjóðinni?

Við skulum ekki ganga inn í sökkvandi miðstýringarverkefni á sama tíma og stærstu þjóðir þess leita að útgönguleiðinni.
Segjum NEI 29. ágúst.
