Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?

Júlíus Valsson skrifar:

Ríkisútvarpið er engin venjuleg fréttastofa. Það starfar samkvæmt sérlögum, lögum nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, og fær fé sitt úr vasa hvers skattgreiðanda, hvort sem honum líkar dagskráin betur eða verr. Í staðinn hefur Alþingi falið stofnuninni skyldur sem aðrir miðlar bera ekki í sama mæli. Samkvæmt 3. gr. laganna á RÚV að stuðla að lýðræðislegri umræðu og ábyrgjast að sanngirni og hlutlægni sé gætt. Því ber að leita upplýsinga hjá öllum aðilum máls og kynna sjónarmið þeirra sem jafnast, vera óháð stjórnmálalegum hagsmunum og stunda gagnrýna fréttamennsku gagnvart stjórnvöldum. Stofnun sem öllum er skylt að fjármagna má aldrei verða málgagn eins sjónarmiðs, jafnvel þótt það sjónarmið sitji í ríkisstjórn.

„Öryggishlutverk“ RÚV

Sömu lög fela RÚV sérstakt öryggishlutverk. Í samstarfi við þar til bær stjórnvöld skal stofnunin tryggja nauðsynlega öryggisþjónustu með upplýsingamiðlun. Þegar jörð skelfur á Reykjanesi eða óveður gengur yfir landið stilla menn á Ríkisútvarpið, og þá ber því að segja satt og tímanlega frá þeirri hættu sem að steðjar. Að baki býr sú hugsun að almenningur eigi rétt á að vita þegar grundvelli tilveru hans er ógnað.

En grundvöllur tilveru þjóðar er fleira en hraun og veðurfar. Hann er einnig stjórnskipanin sjálf, sjálf spurningin um það hver setur þau lög sem þjóðin lifir eftir.

Frumvarpið um Bókun 35

Utanríkisráðherra hefur nú lagt fram frumvarp um bókun 35 í fjórða sinn. Að baki stendur hótun Eftirlitsstofnunar EFTA um samningsbrotamál. Samkvæmt frumvarpinu á skýrt og óskilyrt lagaákvæði, sem réttilega innleiðir EES-skuldbindingu, að ganga framar öðru almennu lagaákvæði við árekstur, nema Alþingi hafi sérstaklega mælt fyrir um annað. Stuðningsmenn kalla þetta meinlausa túlkunarreglu og benda á að bókunin sjálf segi að markmiðum EES skuli náð án framsals löggjafarvalds. Við sem gagnrýnum málið sjáum forgangsreglu sem flytur þungamiðju lagasetningar frá Alþingi til þeirra stofnana sem semja reglurnar og felur dómstólum hlutverk sem stjórnarskráin hefur hvergi ætlað þeim. Norska stjórnarskráin leyfir framsal ríkisvalds en reisir því háan þröskuld. Sú íslenska geymir enga slíka heimild.

Umfjöllun RÚV í skötulíki

Hér hefði mátt ætla að RÚV teldi sér skylt að útskýra fyrir landsmönnum hvað bókunin felur í sér og hvers vegna málið hefur strandað þrívegis. Þegar frumvarpið var lagt fram 22. september birti RÚV stutta fréttaskýringu. Óháða matssíðan Vitinn, sem metur gæði íslenskrar blaðamennsku, gaf henni fimm af tíu í einkunn og flokkaði hana sem vafasama. Að mati Vitans var málið rakið nær eingöngu frá sjónarhóli ríkisstjórnarinnar, enginn andmælandi fékk orðið og lesandanum var hvergi sagt hvað bókun 35 gengur út á. Stærsta fullyrðing fréttarinnar var auk þess eignuð ónafngreindri „fréttastofu“. Vitinn benti loks á að eitt umdeildasta þingmál síðustu ára væri þar afgreitt sem verk sem einfaldlega þyrfti að „klára“, og að það orðalag væri sótt beint til stjórnvalda.

RÚV sinnir ekki hlutleysisskyldu sinni

Slíkt heitir ekki hlutleysi. Þjóðarmiðillinn RÚV á ekki að velja þá túlkun sem ráðherranum er þægilegust. Honum ber að kalla til færustu lögfræðinga beggja sjónarmiða og leggja frumvarpstextann á borðið svo almenningur heyri rökin.

Stofnun sem getur varað landsmenn við gasmengun með nokkurra klukkustunda fyrirvara ætti að geta varað þá við því að valdmörk lýðveldisins séu færð til og þegar sjálft fullveldið er í bráðri hættu. Hvort sú tilfærsla er háskaleg eða meinlaus er landsmanna sjálfra að meta. Til þess þurfa þeir upplýsingar, og þær á Ríkisútvarpið að veita. Fyrir það er greitt. Milljarða!

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila