Hvíta húsið hræðir fólk með hóstandi auglýsingamynd: „Þú sérð hana ekki! En þú heyrir í henni!“

Biden-stjórnin birti myndband með hrekkjavökuhrollvekju á þriðjudaginn til að hræða Bandaríkjamenn til að taka árlega COVID sprautu svo þeir geti forðast „ógnvekjandi þakkargjörð“ í næsta mánuði. Á stuttu svart-hvítu myndbandi (sjá neðar á síðunni) má sjá skuggamynd af einstaklingi með hóstakast á meðan hryllingsmyndatónlist er spiluð undir hóstanum. Skilaboðin í hryllingsmyndastíl eru

„ÞÚ SÉRÐ HANA EKKI! EN ÞÚ HEYRIR Í HENNI! Taktu árlegu COVID sprautuna fyrir hrekkjavökuna. Og forðastu hræðilega þakkargjörð.“

Samkvæmt gögnum ZOE sem voru birt 20. október er þrálátur hósti ekki eitt af þremur stærstu einkennum COVID-sýkingar (útdráttur):

  • Röðun COVID-einkenna eftir tvær bólusetningar: 1 hálsbólga 2 nefrennsli 3 nefstífla 4 viðvarandi hósti 5 höfuðverkur
  • Röðin breytist eftir einn skammt af bólusetningunni: 1 Höfuðverkur 2 Nefrennsli 3 Hálsbólga 4 Hnerri 5 Viðvarandi hósti
  • Ef þú hefur ekki enn verið bólusettur, þá eru einkennin samkvæmt upprunalegri röðun en nokkrar breytingar sjást frá því þegar COVID-19 kom fyrst fram fyrir rúmu ári síðan: 1 Höfuðverkur 2 Hálsbólga 3 nefrennsli 4 Hiti 5 Viðvarandi hósti. Lyktarleysi kemur inn í númer 9 og mæði kemur langt niður á listanum númer 30, sem gefur til kynna að einkennin eins og þau voru áður eru að breytast með þróun afbrigða veirunnar.

Skilaboð forsetans: „Dauðinn bíður óbólusettra og þeirra sem ekki taka örvunarsprauturnar“

The Gateway Pundit greindi frá því, að Joe Biden Bandaríkjaforseti fékk fimmtu COVID sprautuna nýlega og hann varaði við því, að dauðinn bíður þeirra sem ekki taka örvunarsprauturnar.

Í desember síðastliðnum reyndi Biden að hræða líftóruna úr Bandaríkjamönnum með því að vara við vetri dauðans fyrir þá óbólusettu:

„Fyrir óbólusetta bíður vetur alvarlegra veikinda og dauða – ef þú ert óbólusettur – fyrir þá sjálfa, fjölskyldur þeirra og yfirfull sjúkrahúsin.“

En hér eru góðar fréttir: Ef þú ert bólusettur og hefur tekið örvunarsprautuna þína, þá ertu verndaður fyrir alvarlegum veikindum og dauða – punktur.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila