ISIS hóta að fremja hryðjuverk á vinsælum ferðamannastöðum Spánar í sumar

barcelonaHryðjuverkasamtökin ISIS hafa í gegnum samfélagsmiðla að gera vinsæla ferðamannastaði á Spáni að næsta skotmarki þeirra í sumar. Ekki fylgdi þó hótununum um hvaða staðir á Spáni kynnu að verða skotmark samtakanna en eins og kunnugt er sækja ferðamenn í tugmilljónavís þá fjölmörgu ferðamannastaði sem eru í landinu árlega. Óljóst er hvaða áhrif hótanirnar munu hafa á þá ferðamenn sem ætla að ferðast til Spánar í sumar en viðbúið er að þær kunni að hafa talsverð áhrif á ferðaþjónustuna í landinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila