Ísland er makinn sem aldrei segir nei

Júlíus Valsson skrifar:

Í fræðum um ofbeldissambönd er til hugtak sem kallast meðvirkni. Það lýsir þeim sem lagar sig svo rækilega að duttlungum annars að hann hættir að taka eftir því að hann hafi nokkru sinni átt eigin vilja. Meðvirki aðilinn afsakar allt og segir vinum sínum að allt sé í himnalagi, þetta með tollana hafi bara verið misskilningur.

Ísland gekk í EES árið 1994. Okkur var sagt að þetta væri viðskiptasamningur, eins konar sambúð án skuldbindinga, þar sem hvor aðili héldi sínu heimili og sínum lykli. Í samningnum var meira að segja ákvæði um að við mættum segja nei. Neitunarvaldið hefur legið ónotað í skúffu utanríkisráðuneytisins í rúm þrjátíu ár, og þaðan hefur enginn ráðherra þorað að draga það fram, þótt margir hafi fengið ærið tilefni til. Norðmenn hótuðu einu sinni að nota sitt. Íslendingar hafa aldrei svo mikið sem ræskt sig.

Hvers vegna? Skýringin blasir við þegar maður hefur einu sinni séð hana. Umsóknin frá 2009 var aldrei dregin til baka, og á meðan hún lá í pósthólfinu í Brussel litu ráðamenn á hverja tilskipun sem heimanám fyrir inntökuprófið. Hver reglugerð sem rann óséð í gegnum þingið var sögð „bæta samningsstöðu Íslands“. Það er sérkennileg samningatækni að láta undan öllu fyrir fram í von um að gagnaðilinn verði þakklátur síðar. Í öðrum fræðum heitir sú aðferð uppgjöf.

Hvernig hefur makinn launað tryggðina.

Í nóvember í fyrra lagði Evrópusambandið verndartolla á kísiljárn. Tollarnir náðu líka til Íslands, sem hefur þó verið hluti af innri markaðnum í meira en þrjá áratugi og framleiðir kísiljárn á Grundartanga með endurnýjanlegri orku fyrir evrópskan stáliðnað. Ísland fékk tollfrjálsan kvóta, eins konar vasapening, en enga undanþágu. Forsætisráðherrann kaus í fyrstu að tjá sig ekki. Þögnin er gamalkunnugt einkenni í samböndum af þessu tagi. Svo skemmtilega vill til að kísiljárnið frá Grundartanga er nú tollfrjálst í Bandaríkjunum, landi sem við skuldum ekkert nema kurteisi.

Þá er það loftslagskerfið. Icelandair hefur greitt jafnvirði um 13,6 milljarða króna í losunar- og kolefniskostnað frá 2022, á sama tíma og félagið hefur tapað fé. Í júlí, rúmum mánuði fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, barst svo blómvöndur frá Brussel: sérlausn fyrir flugið yrði framlengd til 2030. Framkvæmdastjórinn sagði það rökrétt til að styrkja samstarfið við Ísland. Enginn blómvöndur barst vegna skipaflutninga. Tímasetningin var auðvitað tilviljun, eins og allar gjafir sem berast daginn fyrir sáttafund.

Kokhraustir Kanadamenn

Til samanburðar má líta vestur um haf. Kanadamenn sömdu við ESB um fríverslun sem felldi niður tolla af yfir 99 prósentum vöruviðskipta, með fullu tollfrelsi fyrir sjávarafurðir. Þeir þurftu ekki að taka upp eina einustu tilskipun og þurfa ekki að spyrja ESA leyfis þegar þeir setja lög. Ísland, sem hefur tekið upp þúsundir gerða, hefur aldrei notið fulls tollfrelsis með fisk. Sá sem gefur allt fær minna en sá sem gefur ekkert. Þá lexíu læra meðvirkir seinast.

Ísland þorði loks að segja nei, en þá kom Bókun 35…

Og þá að rúsínunni í pylsuendanum. Hinn 29. ágúst hafnaði þjóðin því, með 52,8 prósentum atkvæða, að hefja aðildarviðræður að nýju. Sama kvöld skoraði utanríkisráðherra á formann Miðflokksins að gerast fyrsti flutningsmaður frumvarps um bókun 35. Þremur vikum síðar var frumvarpið komið fram í fjórða sinn.

Þegar EES var lögfest árið 1993 var bókun 35 mætt með einni hógværri lögskýringarreglu, og það var engin tilviljun. Menn vissu að lengra yrði ekki gengið án þess að reyna á stjórnarskrána og meirihlutann á þingi. Nú á að lögfesta að EES-reglur gangi framar almennum lögum Alþingis nema þingið taki sérstaklega fram að svo skuli ekki vera. Löggjafinn á með öðrum orðum að biðja um leyfi til að setja eigin lög.

Þjóðin sagði skýrt NEI!

Þjóðin sagði nei. Ríkisstjórnin heyrði „ekki núna“. Sá sem virðir ekki nei í stóru málunum virðir það sjaldnast í þeim smærri. Bókun 35 er inngöngubeiðni um bakdyrnar, send þremur vikum eftir að þjóðin læsti framdyrunum.

Úr þessu verður ekki lengur talað um meðvirkni. Meðvirkni á sér þá málsbót að hún er ómeðvituð. Það sem nú fer fram á Alþingi er gert að þjóðinni ásjáandi og gegn skýrum vilja hennar.

Sagt er að fyrsta skrefið út úr ofbeldissambandi sé að segja nei og meina það. Íslenska þjóðin tók það skref 29. ágúst. Nú reynir á hvort þingmenn hennar þora að fylgja á eftir, eða hvort þeir kjósa enn einu sinni að bæta samningsstöðuna við ESB.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila