
Alþjóðlegur sérfræðingafundur um fiskveiðistjórnun fór fram í Hörpu þar sem nærri 150 sérfræðingar frá rúmlega 60 ríkjum koma saman til að ræða tæknileg og stefnumótandi málefni á sviði stjórnunar fiskveiða á heimsvísu. Fundurinn stóð yfir dagana 23. til 27. febrúar og var haldinn á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Formennska Íslands skapar áhrifavettvang
Fundurinn er hluti af starfi undirnefndar FAO um fiskveiðistjórnun en Ísland gegnir nú formennsku í nefndinni til tveggja ára. Um er að ræða nýjan alþjóðlegan samstarfsvettvang sem ætlað er að verða leiðandi umræðuvettvangur um stjórnun fiskveiða og framkvæmd alþjóðlegrar stefnumótunar á sviði nýtingar lifandi auðlinda hafsins.
Þátttakendur á fundinum starfa víða innan stjórnkerfa ríkja og hafa umtalsverð áhrif á mótun stefnu og framkvæmd fiskveiðistjórnunar bæði á landsvísu og í alþjóðlegu samstarfi. Með formennsku Íslands skapast tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun alþjóðlegra viðmiða og samstarfs á þessu sviði.
Íslensk nálgun kynnt á alþjóðavettvangi
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn við upphaf hans í dag og lagði áherslu á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í gegnum Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Í máli hennar kom fram að stofnunin gegni mikilvægu hlutverki í gagnaöflun, samhæfingu aðgerða og baráttu gegn ólöglegum fiskveiðum á heimsvísu.
Á fundinum gefst jafnframt færi á að kynna íslenska nálgun að fiskveiðistjórnun sem byggir á vísindalegri ráðgjöf, skýru regluverki og langtímasýn um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.
Fyrsti staðfundur undirnefndarinnar
Fundurinn í Reykjavík er fyrsti staðfundur undirnefndarinnar en fyrsti fundur hennar fór fram rafrænt í janúar árið 2024. Hefð er fyrir því að fundir á vegum fiskimálanefndar FAO fari fram í heimaríkjum formennskuríkja.
Hlutverk undirnefndarinnar er að efla faglega og tæknilega umræðu um stjórnun fiskveiða, styðja við innleiðingu alþjóðlegra viðmiða og stuðla að samræmdri nálgun ríkja að sjálfbærri nýtingu fiskistofna með það að markmiði að tryggja verndun auðlinda og fæðuöryggi til framtíðar.
