Ítalía hafnar kröfum Spánar um afnám landamæraeftirlits

Ítölsk stjórnvöld segjast ekki ætla að láta undan kröfum Spánverja um að aflétta tímabundnu landamæraeftirliti sem komið var á í kjölfar mikils fjölda flóttamanna sem komust inn í spænska sjálfstjórnarhéraðið Ceuta í Norður-Afríku í síðustu viku. Þetta segir í frétt Politico.

Ríkisstjórn Giorgiu Meloni forsætisráðherra segir eftirlitinu verða haldið áfram að minnsta kosti til 15. ágúst og lengur verði áfram talin hætta á öryggisógnum eða hryðjuverkum.

„Ítalía tekur ekki við úrslitakostum eða kröfum erlendis frá varðandi þjóðaröryggi og landamæraeftirlit,“ segir í yfirlýsingu frá skrifstofu Meloni.

Spánn hótar mótaðgerðum

Spænsk stjórnvöld höfðu fyrr á föstudag hótað „hóflegum mótaðgerðum“ ef Ítalía hætti ekki landamæraeftirlitinu og tímabundinni undanþágu frá Schengen-samstarfinu fyrir 9. ágúst.

Ítalir hafna þeirri kröfu og segja ákvörðunina snúa að þjóðaröryggi landsins þótt Spánn sé vinaþjóð.

Deilan á rætur að rekja til mikils straums flóttamanna til Ceuta í síðustu viku. Ítalía brást við með því að taka tímabundið upp eftirlit með ferðamönnum sem koma frá Spáni.

Óttast nýjan straum flóttamanna 15. ágúst

Í yfirlýsingu ítölsku ríkisstjórnarinnar kemur fram að búist sé við nýjum straumi flóttamanna til Ceuta 15. ágúst. Stjórnvöld telja því ekki tímabært að aflétta eftirlitinu.

Ítalir segja að ákvörðunin verði aðeins endurskoðuð þegar tryggt sé að engin öryggis- eða hryðjuverkaógn steðji að landinu, ekki sé von á nýjum straumi flóttamanna og óreglulegir innflytjendur séu ekki á leið inn á evrópskt landsvæði.

Deilan milli Ítalíu og Spánar snertir jafnframt Schengen-samstarfið þar sem tímabundið landamæraeftirlit Ítalíu gengur gegn þeirri meginreglu að ferðast megi milli þátttökuríkjanna án hefðbundins eftirlits á innri landamærum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila