
Júlíus Valsson skrifar:
Jagúar afhjúpar n.k. þriðjudag rafbílinn Type 01 í New York, fyrsta framleiðslubíl fyrirtækisins eftir umdeilda endurhönnun vörumerkisins. Bíllinn skilar 1.000 hestöflum og kemur á 23 tommu felgum. Verðið verður frá 130.000 pundum (tæpar 22 milljónir ISK) og að sögn The Sunday Times, sem birtir í dag fyrstu upplýsingar um bílinn, liggja 360 ný einkaleyfi að baki framleiðslunnar.
Type 01 er þróuð útgáfa hugmyndabílsins Type 00 sem kynntur var í desember 2024. Sú kynning vakti hörð viðbrögð víða um heim. Í litskrúðugri auglýsingu með svipbrigðalausum fyrirsætum sást enginn bíll, og gamla merkið með urrandi jagúarhausnum hafði verið lagt til hliðar. Gagnrýnendur sögðu herferðina mjög „woke“. Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði auglýsinguna „heimskulega“ og taldi hana til marks um að fyrirtækið væri í algjöru uppnámi. Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, gagnrýndi hana einnig og Elon Musk, forstjóri Tesla, spurði hvort Jagúar framleiddi enn bíla?
Rawdon Glover, framkvæmdastjóri Jagúar, segir í samtali við blaðið að kynningin verði ein af merkustu stundunum í rúmlega níutíu ára sögu fyrirtækisins. Hann gefur í skyn að dregið hafi verið úr framsæknustu þáttum endurhönnunarinnar en bendir á að tónninn í markaðsefni fyrirtækisins hafi breyst smám saman.
Útlit bílsins er þó enn afdráttarlaust. Rafbíll þarf í raun ekki langa vélarhlíf en hönnuðirnir kusu að hafa hana langa engu að síður, og Glover tekur undir að ökumenn eigi að verða smeykir þegar Jagúar birtist í baksýnisspeglinum á hraðbrautinni. Hann vonast til að gagnrýnendum snúist hugur þegar þeir sjá bílinn en segir fyrirtækið jafnframt kunna vel við allt umtalið. „Það kann að skipta fólki í fylkingar, hvort sem það er forseti Bandaríkjanna eða einhver annar. Og það er í raun allt í lagi,“ segir hann.
Þröng staða móðurfélagsins
Bíllinn kemur fram á erfiðum tíma fyrir Jaguar. The Sunday Times greindi frá því í síðasta mánuði að móðurfélagið Jaguar Land Rover, sem er í eigu indverska stórfyrirtækisins Tata Motors, hygðist fækka störfum um 4.000, eða um tíunda hvert starf, vegna minnkandi sölu og harðnandi samkeppni frá Kína. Jonathan Reynolds viðskiptaráðherra vísaði á bug spurningum um hvort þjóðnýta þyrfti félagið. Slíkar vangaveltur komu stjórnendum á óvart enda áforma þeir að fjárfesta fyrir 6,5 milljarða punda á næstu tveimur árum, að mestu í Bretlandi. Þegar hefur 11,5 milljörðum verið varið af allt að 18 milljarða fjárfestingu sem tilkynnt var árið 2024.
Glover leggur áherslu á að bíllinn sé breskur í húð og hár. Hann er hannaður í Gaydon og smíðaður í Solihull, rafhlöðurnar eru settar saman í Wolverhampton og yfirbyggingin undirbúin í Halewood.
Úr hliðarvögnum í Le Mans
Saga fyrirtækisins hófst í Blackpool árið 1922 þegar William Lyons og William Walmsley stofnuðu Swallow Sidecar Company og smíðuðu hliðarvagna á mótorhjól. Fljótlega færðu þeir sig yfir í yfirbyggingar á bíla og fluttu starfsemina til Coventry árið 1928. Nafnið Jagúar sást fyrst á bíl árið 1935 og við það miðar Glover þegar hann talar um níutíu ára sögu. Eftir síðari heimsstyrjöld þótti skammstöfunin SS, sem félagið hafði borið frá 1934, ótæk og árið 1945 var heiti þess breytt í Jaguar Cars.
Blómaskeiðið fylgdi í kjölfarið. XK120 var hraðskreiðasti fjöldaframleiddi bíll heims þegar hann kom fram árið 1948 og á sjötta áratugnum vann Jagúar sólarhringskappaksturinn í Le Mans fimm sinnum. E-Type, sem kynntur var 1961, er enn talinn meðal fegurstu bíla sem smíðaðir hafa verið.
Síðan tók við rysjóttari tíð. Félagið rann árið 1968 inn í samsteypuna British Leyland, sem síðar var þjóðnýtt, og var ekki einkavætt á ný fyrr en 1984. Ford keypti það fimm árum síðar og seldi það Tata árið 2008 ásamt Land Rover.
Barnabarn Lyons, sem fékk að sjá Type 01 á undan öðrum, hefur lagt blessun sína yfir bílinn. Glover hefur eftir honum að afi hans hefði farið nákvæmlega þessa leið væri hann á lífi.
Nú er bara að semja við umboðið:
https://www.jaguarisland.is
heimild:
The Sunday Times
