Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands stefnulaus leiðtogi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðu Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands og þróun stjórnmála í Evrópu. Í umræðunni sagði Guðmundur að hann teldi helsta vanda Starmer felast í skorti á skýrri stefnu og hugmyndafræðilegri sérstöðu sem hefði veikt stöðu hans gagnvart kjósendum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Stuðningur við Starmer fer hratt minnkandi

Guðmundur sagði að sífellt meiri gagnrýni hefði komið fram á ríkisstjórn Starmer, frá því hann tók við embætti forsætisráðherra og sér í lagi nú eftir stórtap flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Hann taldi að margir kjósendur ættu erfitt með að átta sig á því fyrir hvað ríkisstjórnin stæði í raun og veru. Í umræðunni kom fram að tilraunir Starmer til að höfða til breiðs hóps kjósenda hefðu orðið til þess að stefna Verkamannaflokksins hefði að mati gagnrýnenda orðið óskýr. Guðmundur sagði að það hefði meðal annars komið fram í umræðu um Evrópusambandið og framtíðarsamskipti Bretlands við Evrópu eftir Brexit.

Að hans mati hefði Starmer ekki tekist að skapa þá pólitísku sérstöðu sem áður einkenndi stærri leiðtoga breskra stjórnmála.

Hugmyndafræðilegt tómarúm í vestrænum stjórnmálum

Guðmundur sagði að þróunin í Bretlandi endurspeglaði víðari breytingar í stjórnmálum Vesturlanda þar sem hefðbundin átök milli hægri og vinstri væru ekki lengur jafn skýr og áður. Hann taldi að flest vestræn ríki byggðu nú á svipuðu blönduðu hagkerfi þar sem markaðskerfi og ríkisafskipti færu saman. Afleiðingin væri sú að stjórnmálaflokkar ættu erfiðara með að skapa sér afgerandi sérstöðu eða sterka hugmyndafræðilega ímynd.

Í umræðunni sagði Guðmundur að þessi þróun hefði leitt til aukins stefnuleysis í stjórnmálum og leiðtogar á borð við Starmer ættu því erfiðara með að byggja upp traust og skýra framtíðarsýn.

Segir stöðu Starmer veikjast hratt

Arnþrúður nefndi að staða Starmer hefði verið mikið rædd í breskum fjölmiðlum undanfarna mánuði og stuðningur við ríkisstjórn hans hefði farið hratt minnkandi. Guðmundur sagði að ef ríkisstjórninni tækist ekki að móta skýrari stefnu gæti pólitísk staða Starmer veikst enn frekar á næstunni. Arnþrúður sagði að fjölmargir þingmenn og söluleiðis ráðherrar Verkamannaflokksins hafi skrifað undir áskorum um að Starmer hætti sem forsætisráðherra.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila