
Kínverski tæknirisinn DeepSeek hefur kynnt nýtt gervigreindarlíkan sem fyrirtækið segir mun ódýrara í rekstri en fyrri kerfi og fær um að vinna með gríðarlega langa texta. Kynningin kemur á sama tíma og samkeppni milli Kína og Bandaríkjanna um yfirburði í gervigreind harðnar hratt. Þetta kemur fram í frétt France24.
Getur unnið með milljón orða texta
Nýja líkanið kallast DeepSeek-V4 og segir fyrirtækið að það geti unnið með allt að einni milljón orða í einu samhengi. Slík geta skiptir miklu máli í þróun gervigreindar þar sem hún ræður hversu mikið magn upplýsinga kerfið getur tekið inn og unnið úr við lausn verkefna. Fyrirtækið segir nýju útgáfuna einnig hafa mun lægri reikni- og minniskostnað en eldri kerfi og að hún sé sérstaklega hönnuð til að gera notkun stórra gervigreindarlíkana ódýrari og skilvirkari.
Tvær útgáfur af nýja kerfinu
DeepSeek gaf út tvær útgáfur af kerfinu, annars vegar DeepSeek-V4-Pro og hins vegar DeepSeek-V4-Flash. Sú síðarnefnda er sögð hagkvæmari og hraðvirkari þar sem hún notar færri svokallaða færibreytur. V4-Pro inniheldur 1,6 billjón færibreytur á meðan Flash-útgáfan er með 284 milljarða. Færibreyturnar hafa áhrif á getu líkansins til að læra, greina upplýsingar og taka ákvarðanir.
DeepSeek olli skjálfta í tæknigeiranum
DeepSeek vakti heimsathygli í janúar á síðasta ári þegar fyrirtækið kynnti R1-rökhugsunarlíkanið sitt. Það þótti skila sambærilegum árangri og bandarísk gervigreindarkerfi, en með mun minni tölvuafli og lægri þróunarkostnaði. Kynningin olli miklum viðbrögðum á mörkuðum og leiddi til lækkana á hlutabréfum tengdum gervigreind. Margir líktu áhrifunum við „Sputnik-andartak“ fyrir tæknigeirann.
Bandaríkin segja Kínverja hafa stolið tækninni
Á sama tíma og DeepSeek styrkir stöðu sína hafa bandarísk stjórnvöld sakað kínversk fyrirtæki um að reyna að komast yfir bandaríska gervigreindartækni. Tækniráðgjafi Donald Trump, Michael Kratsios, sagði að bandarísk stjórnvöld hefðu vísbendingar um umfangsmiklar aðgerðir erlendra aðila, einkum frá Kína, til að afrita eða stela bandarískum gervigreindarlíkönum.
Open source stefna styrkir stöðu fyrirtækisins
Ein helsta ástæða vinsælda DeepSeek í Kína hefur verið ákvörðun fyrirtækisins um að hafa kerfin opin og aðgengileg þróunaraðilum. Þar sker fyrirtækið sig frá mörgum vestrænum samkeppnisaðilum sem halda kóðanum lokuðum. Kerfi DeepSeek hafa nú verið tekin í notkun hjá kínverskum sveitarfélögum, heilbrigðisstofnunum og fyrirtækjum í fjármálageiranum.
Stór tæknifyrirtæki fækka starfsfólki
Fréttirnar koma einnig á sama tíma og Meta tilkynnti um áform um að segja upp um tíunda hluta starfsfólks síns á meðan fyrirtækið eykur fjárfestingar í gervigreind. Þá hafa einnig komið fram fréttir um að Microsoft skoði frekari niðurskurð hjá fyrirtækinu.
