Sunnudagskvöld voru efnasérfræðingar kallaðir til Hvíta hússins til að rannsaka grunsamlegt hvítt efni sem reyndist jákvætt fyrir kókaínhýdróklóríði. Fréttin kom frá blaðamanninum Andrew Leyden sem birti myndir á Twitter sem sýndu sveitir Hazmat staðsettar nálægt hliði vesturálmu Hvíta hússins.
Að morgni 4. júlí, þjóðhátíðardags kom frétt um að staðfest væri að hvíta duftið sem fannst í Hvíta húsinu væri kókaín. Washington Post skrifaði frétt um málið.
Kókaínið fannst eftir að Hunter Biden sást í Hvíta húsinu áður en fjölskylda hans og Bandaríkjaforseta fóru í frí um helgina til Camp David. Eiturlyfjaneysla forsetasonarins hefur verið notuð af spilltum embættismönnum dómsmálaráðuneytisins til að leggja niður ákærur og refsingu á glæpum hans. Þriðjudag staðfesti leyniþjónustan við Washington Post að efnið sem var kókaín jákvætt hefði fundist inni í Hvíta húsinu. Daily Mail segir í frétt þriðjudag, að kókaínið hafi fundist inni á bókasafni Hvíta hússins.
Hvernig er hægt að hanga með Joe Biden í fjóra daga án þess að vera undir áhrifum?
Rob Schmitt hjá Newsmax TV segir frétt af atburðinum á sinn einstæða hátt:
„Það er ekki ljóst hvernig það komst þangað eða hver er eigandinn, en svo virðist sem kókaín hafi fundist í Hvíta húsinu. Það væri varla nein dúndrandi 4. júlí hátíð án þess að Hunter Biden sjúgi í sig línur af brjóstmynd Teddy Roosevelt.“
„Dularfullt hvítt duft fannst í vesturálmunni á sunnudag, sem varð til þess að hringt var í slökkviliðið. Ég vildi að ég væri að búa þetta til, en þetta er satt. Newsmax getur staðfest að slökkviliðið telur að duftið sé kókaín. Það var sent á rannsóknarstofu til frekari greiningar.“
„Ég get upplýst ykkur um, að Hunter var í Hvíta húsinu á föstudaginn og fór með föður sínum til Camp David. Því miður gæti hann hafa gleymt uppáhalds veisluföngum sínum, sem er óheppilegt. Ímyndaðu þér að þurfa að hanga með Joe Biden í fjóra daga án þess að vera undir áhrifum. Það yrði afar löng helgi.“