
Júlíus Valsson skrifar:
Í október n.k. hyggst Röst sjávarrannsóknasetur blanda um átta tonnum af vítissóda í yfirborðssjó Hvalfjarðar á fjórum dögum. Tilgangurinn er að kanna hvort auka megi getu hafsins til að taka upp koldíoxíð. Stjórnvöld höfnuðu sambærilegri umsókn vorið 2025, þar sem skýra stefnu skorti. Nú hefur leyfi verið veitt, þótt lögin sem eiga að móta stefnuna séu enn ókomin. Því liggur á!
Ég ætla ekki að halda því fram að Hvalfjörður verði eitraður. Natríum og hýdroxíð eru eðlilegir þættir sjávar, basinn hvarfast á fáeinum sekúndum og hann safnast hvorki fyrir í botni né lífríki. Í tilraun í Tasmaníu með sama efni dreifðist mengaði sjórinn hratt og innan nokkurra metra frá losunarstað. Vandinn liggur annars staðar.
Hvað er verið að mæla?
Röst segir markmiðið vera að meta hversu vel aðferðin bindi kolefni. Á þessum skala og á þessum stað er það nánast ómögulegt að mæla. Jafnvægi koldíoxíðs milli hafs og lofts getur tekið marga mánuði, og á meðan þynnist viðbætt basavirkni niður fyrir þau mörk sem greind verða frá náttúrulegum breytileika. Í firði sem skiptir út sjó við Faxaflóa hlýtur mat á sjálfri bindingunni því að hvíla á reiknilíkönum. Einmitt sú staðreynd að illmögulegt er að mæla upptökuna beint hefur gert hafstraumalíkön að þungamiðju sannprófunar í þessum fræðum. Tilraunin mun skila gögnum um dreifingu og sýrustig, og þau hafa sitt gildi. Spurningunni sem sett er á oddinn svara þau hins vegar ekki.
Hver eru áhrifin á „loftslagið“?
Loftslagsreikningurinn sjálfur er líka afar óþægilegur. Vítissódi er framleiddur með rafgreiningu saltpækils. Samkvæmt lífferilsgreiningu fylgja hverju kílói rúmlega tvö kíló koldíoxíðígilda, einkum vegna mikillar raforkunotkunar. Átta tonn kosta þá um sautján tonn. Fræðilegt hámark upptöku, næði allur basinn fullu jafnvægi við andrúmsloftið, er um sjö tonn. Tilraunin losar sem sagt meira en hún getur nokkurn tíma bundið. Það er út af fyrir sig enginn dauðadómur yfir rannsókn, en það hefði átt að koma fram í kynningu Rastar. Sama ferli skilar auk þess nærri jafnmiklu af klóri og vítissóda, og sú leið verður því seint stórtæk. Hvers vegna er þá verið að prófa hana hér? …og hver verða áhrifin á lífríkið?
Hver borgar og hver hefur eftirlit?
Röst er fjármagnað af bandarísku samtökunum Carbon to Sea og var stofnað sem dótturfélag Transition Labs. Samkvæmt RÚV standa sömu aðilar að baki Röst og stóðu að Running Tide. Það fyrirtæki sökkti um 19 þúsund tonnum af viðarflísum í sjóinn við Ísland, og enginn hlutlaus aðili hefur staðfest þá kolefnisbindingu sem seld var Microsoft og Shopify. Ráðherra hafði þá ákveðið að líta á verkefnið sem rannsókn frekar en losun í sölutilgangi. Fyrirtækið var hrakið úr landi.
Röst er annað félag en rannsóknarstimpillinn hefur samt áður verið notaður hér á landi til að greiða götu verkefnis sem snerist um sölu kolefniseininga. Íbúar við Hvalfjörðinn hafa því ærið tilefni til tortryggni.
Dæmigerð íslensk spilling?
Við bætist að starfsmaður Hafrannsóknastofnunar situr í ráðgjafaráði Rastar og að stofnunin hefur þegið styrk frá Röst til að rannsaka grunnástand vistkerfis fjarðarins. Eftirlitið hvílir nú að verulegu leyti á sömu stofnunum og veittu umsögnina. Í lyfjarannsóknum þætti slíkt fyrirkomulag óboðlegt.
Reynslan erlendis
Í St Ives-flóa í Cornwall hugðist kanadíska fyrirtækið Planetary Technologies gera svipaða tilraun. Óháð úttekt sem breska umhverfisstofnunin lét gera mat hana mjög áhættulitla. Íbúar komust þó að því að fyrirtækið hafði þegar selt Shopify kolefniseiningar, og eftir mikla gagnrýni heimamanna dró það sig út úr flóanum. Andstaðan þar snerist fyrst og fremst um gagnsæi og samþykki nærsamfélagsins.
Í Maine-flóa frestaði Woods Hole-stofnunin sinni tilraun eftir andstöðu sjómanna og umhverfissamtaka, auk viðvarana frá bandarísku fiskveiðistofnuninni um hættu fyrir fiskistofna. Magn basans var minnkað um þrjá fjórðu. Tilraunin fór loks fram langt úti á opnu hafi, að loknu opnu umsagnarferli hjá umhverfisstofnun Bandaríkjanna. Hvalfjörður er hins vegar hálflokaður fjörður í bakgarði höfuðborgarsvæðisins, og hér hefur lagaramminn ekki einu sinni verið settur. Því liggur á!
Alþjóðlegi ramminn er heldur ekki tilbúinn. Aðildarríki Lundúnasamningsins hafa lýst því yfir að aðferðir á borð við þessa geti haft útbreidd, langvinn eða alvarleg skaðleg áhrif á umhverfið og að óvissan sé of mikil. Breytingin frá 2013, sem á að setja reglur um hafverkfræði, hefur aðeins verið fullgilt af sex ríkjum. Ísland er ekki á meðal þeirra. Surprise! Á fundi aðildarríkjanna í október 2025 var ákveðið að halda áfram vinnu við skilgreiningar og matsramma og skila niðurstöðum á næsta fundi, árið 2026.
Hvað þarf að gera?
Eigi leyfið að standast skoðun verður að birta opinberlega þau viðmiðunargildi sem leiða til stöðvunar verkefnisins. Eftirlitið ætti að vera í höndum aðila sem hefur aldrei þegið fé frá leyfishafa. Jafnframt þarf að binda í leyfið að gögnin verði aldrei nýtt til sölu kolefniseininga og kveða skýrt á um hver ber ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis.
Vísindi þurfa traust. Það traust ávinnst illa þegar leyfi er veitt á undan lögunum.
Hvalfjörður á betra skilið en að verða tilraunastofa erlends fjármagns á meðan löggjafinn hefur ekki enn lokið sínu verki. Það liggur á!
