Könnun: Meirihluti hefur ekki lesið stjórnarskrá íslenska lýðveldisins

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist ekki hafa lesið Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hefur þú lesið Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 70,91%
Já: 29,09%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila