Könnun: Meirihluti telur umfjöllun fjölmiðla um Evrópusambandið ekki nægjanlega upplýsandi

Langflestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að umræða fjölmiðla á Íslandi um Evrópusambandið sé ekki nægjanlega upplýsandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Er umræðan um Evrópusambandið nægjanlega upplýsandi í fjölmiðlum á Íslandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 89,74%

Já: 8,21%

Hef ekki kynnt mér málin: 2,05%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila