
Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að heimgreiðslur eigi að vera valkostur fyrir foreldra í leikskólamálum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Eiga heimgreiðslur að vera valkostur fyrir foreldra í leikskólamálum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 84,34%
Nei: 9,64%
Hlutlaus: 6,02%
