Könnun: Telja að Donald Trump verði tilnefndur sem forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Donald Trump verði tilnefndur sem forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Donald Trump verði tilnefndur sem forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 49,6%

Nei 46%

hlutlaus 4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila