
Langflestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við Evrópusambandið fari fram í ágúst á þessu ári. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Vilt þú að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við Evrópusambandið fari fram í ágúst á þessu ári?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 82,98%
Já: 14,54%
Hlutlaus: 2,48%
