Könnun: Yfirgnæfandi meirihluti telur framkvæmdastjórn ESB ógna réttarríkinu í Póllandi

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ógni réttarríkinu í Póllandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Er réttarríkinu Póllandi ógnað af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 91,73%

Nei: 5,40%

Hlutlaus: 2,88%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila