Kristnar menningarminjar eyðilagðar í Nagorno-Karabakh

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Birgi Þórarinsson, fyrrverandi alþingismann, Harald Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og Hlín Leifsdóttur sópransöngkonu í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu, um eyðileggingu kristinna menningarminja í Nagorno-Karabakh og ofsóknir gegn kristnum samfélögum í Mið-Austurlöndum. Birgir gagnrýndi stjórnvöld í Aserbaídsjan fyrir markvissa eyðileggingu kirkna, kirkjugarða og annarra kristinna kennileita á landsvæðinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Gervihnattamyndir sýna eyðileggingu kristinna minja

Birgir sagði stjórnvöld í Aserbaídsjan hafa staðið fyrir eyðileggingu kristinna menningarminja eftir að landið náði yfirráðum yfir Nagorno-Karabakh. Þar á meðal væru fornar kirkjur, kirkjugarðar og steinkrossar sem hefðu verið hluti af menningararfi Armena um aldir.

Hann lýsti því hvernig jarðýtur hefðu verið notaðar til að ryðja niður kirkjugörðum og kristnum kennileitum. Birgir vísaði til skýrslu sem hann vann á vettvangi Evrópuráðsins þar sem eyðileggingin hefði meðal annars verið skjalfest með gervihnattamyndum.

Hann sagði myndirnar sýna umfang aðgerðanna og gagnrýndi að lítil athygli beindist að eyðileggingu þessara menningarverðmæta.

Eyðilegging menningararfs hefur áhrif á sjálfsmynd þjóða

Pétur vakti athygli á því að þegar menningarminjar væru eyðilagðar væri ekki aðeins verið að fjarlægja byggingar heldur einnig ummerki um sögu og trúarbrögð þjóðarinnar.

Hann bar þetta saman við mikilvægi Íslendingasagnanna og miðaldabókmennta fyrir þjóðerniskennd Íslendinga. Hann spurði hvort varðveisla sögulegs ritmáls og menningararfs hefði sambærilega þýðingu fyrir Armena.

Haraldur sagði ritmál Armena hafa orðið til á 5. öld í tengslum við útbreiðslu kristninnar. Þróun þess hefði gert þjóðinni kleift að varðveita trúarrit, sögur og menningu á eigin tungumáli.

Hann benti jafnframt á að menningarheimar gætu varðveist þótt efnislegar minjar þeirra væru eyðilagðar.

Kristnum íbúum Batnaya hefur fækkað úr yfir 10.000 í færri en 2.000

Pétur beindi umræðunni að stöðu kristinna samfélaga í Mið-Austurlöndum og þeirri litlu athygli sem ofsóknir gegn þeim fengju í alþjóðlegri umræðu.

Birgir lýsti mikilli fækkun kristinna íbúa í Norður-Írak og nefndi bæinn Batnaya sem dæmi. Þar hefðu áður búið yfir 10.000 kristnir íbúar en nú væru þeir færri en 2.000 samkvæmt upplýsingum hans.

Hann sagðist sjálfur hafa heimsótt bæinn og kynnt sér aðstæður íbúanna. Birgir rifjaði upp ofsóknir hryðjuverkasamtakanna ISIS gegn kristnum samfélögum á svæðinu og hvernig átökin hefðu leitt til þess að fjölmargir yfirgáfu heimili sín.

Hann gagnrýndi að lítið væri fjallað um afleiðingar þessara ofsókna og þá miklu fækkun sem orðið hefði í kristnum samfélögum Norður-Íraks.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila