
Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir nýja rannsókn sýna fram á kerfisbundna andúð gegn kristnum innan alríkisstofnana á valdatíma Joe Biden. Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra, kynnti niðurstöður 565 blaðsíðna skýrslu þar sem fram kemur að vandinn hafi verið útbreiddur innan kerfisins en ekki bundinn við einstaka starfsmenn eða stofnanir. Þetta kemur fram í frétt Fox News.
Í skýrslunni kemur fram að alríkislögreglan FBI hafi fylgst með kaþólskum prestum og að skattayfirvöld hafi neitað kristnum samtökum um skattfríðindi á grundvelli trúarskoðana þeirra.
Segir vandann hafa verið kerfislægan
Blanche segir niðurstöðurnar sýna að um hafi verið að ræða rótgróið mynstur innan dómsmálaráðuneytisins þar sem kristnir hafi verið sérstaklega skotmark. Hann segir aðgerðir hafa beinst að einstaklingum á grundvelli trúar og að slíkt hafi gengið gegn grundvallarréttindum.
Samkvæmt skýrslunni hafi stjórnvöld einnig reynt að veikja lagalega vernd trúaðra með stefnumótun og reglugerðum.
Kristnir jaðarsettir
Í skýrslunni er því lýst að áhyggjur foreldra af skólamálum hafi verið skilgreindar sem ógn og að trúarlegar ástæður starfsmanna gegn bólusetningarskyldu hafi verið metnar sem ófullnægjandi. Einnig kemur fram að borgararéttindadeild dómsmálaráðuneytisins hafi sett aðra hópa ofar kristnum þegar kom að mati á mismunun. Blanche segir núverandi stjórnvöld hafa hafið aðgerðir til að breyta þessari þróun og tryggja vernd trúfrelsis.
Trump greip í taumana
Fyrrverandi dómsmálaráðherra, Merrick Garland, hafnaði áður slíkum ásökunum og sagði þær ósanngjarnar í ljósi eigin fjölskyldusögu um trúarofsóknir. Rannsóknin byggir á forsetatilskipun Donald Trump sem hafði það að markmiði að uppræta mismunun gegn kristnum innan alríkisstjórnarinnar.
