
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Þann 30. janúar 2026 dæmdi kviðdómur í Westchester-sýslu í New York Fox Varian, 22 ára konu, tvær milljónir Bandaríkjadala í bætur. Brjóst hennar höfðu verið fjarlægð árið 2019, þegar hún var sextán ára og skilgreindi sig sem dreng. Kviðdómurinn taldi að sálfræðingurinn Kenneth Einhorn og lýtalæknirinn Simon Chin hefðu brugðist faglegum skyldum sínum í aðdraganda aðgerðarinnar.
Móðir hennar sagðist hafa verið andvíg aðgerðinni en samþykkt hana af ótta um líf dóttur sinnar. Málið er talið hið fyrsta í Bandaríkjunum þar sem einstaklingur sem hætti kynleiðréttingu vinnur slíkt skaðabótamál fyrir kviðdómi.
Sagan er óþægileg af einfaldri ástæðu. Hún vekur upp spurningu sem hefði átt að vera sjálfsögð frá upphafi: Hvað á læknir að gera þegar barn hafnar eigin líkama?
Eitt svar hefur verið að taka orð barnsins bókstaflega. Hitt er að spyrja hvers vegna því líður svona illa? Gamla hefðbundna læknisfræðin hefði líklega byrjað á seinni spurningunni.
Vanlíðanin kom fyrst
Finnar opnuðu kynvitundarþjónustu fyrir unglinga árið 2011. Þegar fyrstu árin voru gerð upp kom í ljós að alvarlegur geðrænn vandi hafði oft verið til staðar áður en kynaminn varð greinilegur. Einhverfurófseinkenni voru einnig algeng.
Geðlæknirinn Riittakerttu Kaltiala hefur síðar vísað til þess að allt að tveir þriðju barna sem vísað er í slíka þjónustu uppfylli skilmerki geðröskunar. Þunglyndi, kvíði og einhverfa eru þar mest áberandi.
Cass-skýrslan í Bretlandi frá 2024 lýsti svipuðu mynstri eftir fjögurra ára yfirferð. Geðrænn vandi, áföll í æsku og taugaþroskafrávik voru algengari í hópnum en meðal barna almennt. Fjölgun tilvísana var jafnframt talin þurfa að skoðast í samhengi við versnandi geðheilsu unglinga, sérstaklega stúlkna.
Rannsakendur við barnaspítalann í Westmead í Sydney báru börn með kynama saman við börn með aðrar geðraskanir. Ekki fannst marktækur munur á tengslamynstri eða óunnum áföllum.
Það er því ekki fráleitt að spyrja hvort kynaminn sé í sumum tilvikum lýsing á vanlíðan fremur en skýring á henni. Slíkar spurningar eru síður tískuvænar en ný nöfn og ný úrræði. Þær kunna þó að vera gagnlegri.
Heimilið sem hluti af vandamálinu
Barn verður ekki til í tómarúmi. Það vex upp á heimili, í tengslum við foreldra og undir áhrifum af því sem þar gerist.
Áströlsku rannsakendurnir lýstu fjölskylduátökum, rofinni samheldni og áföllum hjá mörgum barnanna sem til þeirra leituðu.
Marantz og Coates báru árið 1991 saman mæður drengja með kynáttunarvanda og mæður annarra drengja. Rúmur helmingur fyrri hópsins uppfyllti skilmerki jaðarpersónuleikaröskunar eða hafði þunglyndiseinkenni, samanborið við sex af hundraði í samanburðarhópnum.
Rannsóknin var takmörkuð og segir ekki allt. Hún segir okkur þó nóg til þess að heimilið verði ekki undanskilið og óviðkomandi í heildarmyndini.
Kenneth Zucker og Susan Bradley töldu einnig að vandi foreldra og viðbrögð þeirra gætu átt þátt í að viðhalda erfiðleikum barnsins. Það er mun auðveldara að breyta nafni barns en fjölskyldumynstri. Auðveldara er þó ekki sama og betra.
Staðfesting er ákvörðun
Þegar ungt barn fær nýtt nafn og er ávarpað sem hitt kynið er talað um félagsleg umskipti. Þeim umskiptun hefur gjarnan verið lýst sem meinlausri kurteisi einkum af wóke-liðinu.
Cass-skýrslan var varkárari og taldi þau virkt inngrip sem gæti haft áhrif á þróun kynvitundar. Hollensk eftirfylgdarrannsókn frá 2013 sýndi jafnframt að kynaminn hélst oftar fram á unglingsár hjá börnum sem höfðu gengið í gegnum félagsleg umskipti.
Þegar barn er enn ókynþroska eru það foreldrarnir sem taka ákvörðunina. Barnið biður kannski um hana, en ábyrgðin helst hjá hinum fullorðnu. Foreldrum er oft sagt að staðfesting geti bjargað lífi barnsins. Cass-skýrslan fann þó ekki traust gögn um að félagsleg umskipti dragi úr sjálfsvígshættu.
Ótti er öflugt stjórntæki. Hann verður ekki betri leiðbeinandi fyrir það eitt að vera notaður í meðferð barna. Foreldrar mega ekki stjórast af óljósum ótta.
Það sem barnið þarfnast
Barn sem hafnar líkama sínum þarf vandað mat á geðheilsu, taugaþroska, kvíða, þunglyndi, áföllum og fjölskylduaðstæðum. Það þarf meðferð þar sem hennar er þörf og tíma þar sem tíminn getur unnið með því.
Finnar settu sálræna meðferð í fyrsta sæti árið 2020. Svíar fóru sömu leið 2022 og Bretar í kjölfar Cass-skýrslunnar.
Hvað með Ísland?
Á Íslandi voru tilvísanir barna í transteymi BUGL 42 árið 2021, 60 árið 2022, 46 árið 2024 og 57 árið 2025. Árið 2026 voru þær 37 fram til 24. september. Miðgildi aldurs við upphaf kynþroskablokka er 16,2 ár og við krosshormóna 17,1 ár.
Engar kynstaðfestandi skurðaðgerðir hafa verið framkvæmdar á börnum undir 18 ára aldri hér samkvæmt opinberum upplýsingum.
Læknisfræði hefur lengi haft þá reglu að varfærni sé dyggð þegar afleiðingarnar verða ekki teknar til baka. Það væri sérkennilegt ef sú regla ætti eingöngu ekki við þegar sjúklingurinn er barn.
Barninu er enginn greiði gerður með því að fullorðna fólkið taki undir allt sem það segir. Það þarf foreldra sem þora að vera foreldrar.
