Le Pen: Íslendingar minna á að ESB-aðild sé ekki sjálfsögð framtíð Evrópu

Marine Le Pen, leiðtogi franska Þjóðfylkingarinnar, segir á samfélgsmiðlinum X að með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi séu send skýr skilaboð um sjálfsákvörðunarrétt þjóða og fullveldi. Hún segir Íslendinga hafa minnt Evrópu á að aðild að Evrópusambandinu sé ekki sjálfsögð framtíð allra evrópskra lýðræðisríkja.

Íslendingar höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Lokaniðurstaðan varð 52,8% gegn áframhaldandi viðræðum en 47,2% með þeim. Kjörsókn var 82,5%.

Þjóðir verði sjálfar að ráða framtíð sinni

Le Pen brást við niðurstöðunni á samfélagsmiðlinum X og sagði Íslendinga hafa minnt á augljós sannindi með því að hafna áframhaldandi aðildarviðræðum. Aðild að Evrópusambandinu væri ekki sjálfkrafa framtíð allra lýðræðisríkja Evrópu.

Hún sagði niðurstöðuna jafnframt senda skýr skilaboð um að þjóðir yrðu sjálfar að geta ákveðið framtíð sína, stofnanir og hvernig þær verji þjóðarhagsmuni sína. Færslan sem Guðmundur Franklín Jónsson birti með íslenskri þýðingu samræmist frumfærslu Le Pen sem einnig hefur verið staðfest í umfjöllun erlendra fjölmiðla.

Önnur Evrópa sé möguleg

Le Pen beindi jafnframt sjónum að þeirri þróun innan Evrópusambandsins sem hún telur stefna í átt að auknu sambandsríki og frekari yfirfærslu fullveldis til framkvæmdastjórnar sambandsins.

Hún sagði niðurstöðuna á Íslandi minna á að önnur Evrópa væri möguleg. Þar vísaði hún til Evrópu frjálsra og fullvalda þjóða sem ynnu saman af fúsum og frjálsum vilja að sameiginlegum hagsmunamálum.

Viðbrögð við niðurstöðunni hafa þegar borist víðar að úr Evrópu. Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, óskaði Íslendingum til hamingju með að hafa kosið að halda sjálfstæði sínu. Evrópskir fjölmiðlar hafa jafnframt fjallað um niðurstöðuna sem pólitískt áfall fyrir áform um frekari stækkun Evrópusambandsins.

Niðurstaðan þýðir að aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins verða ekki teknar upp að nýju að óbreyttu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur lýst því yfir að málið fari ekki áfram í tíð núverandi ríkisstjórnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila