
Marine Le Pen ætlar að ná fram 140 milljarða evra sparnaði í ríkisfjármálum fyrir árið 2032 nái hún kjöri sem forseti Frakklands á næsta ári. Hún varar við því að verði ekki gerð grundvallarbreyting á efnahagsstefnunni stefni Frakkland í greiðsluþrot. Þetta kemur fram í frétt France24.
Le Pen kynnti efnahagsáætlun sína ásamt Jordan Bardella á þriðjudag. Hún ætlar jafnframt að koma fjárlagahalla Frakklands niður fyrir 3% af landsframleiðslu fyrir árið 2030 sem er það hámark sem reglur Evrópusambandsins gera ráð fyrir.
Fjárlagahalli Frakklands nam 5,1% af landsframleiðslu á síðasta ári og ríkisstjórnin gerir nú ráð fyrir að hann verði 5,4% á þessu ári.
„Ef Frakkar velja ekki pólitíska stefnubreytingu stefnir Frakkland í greiðsluþrot,“ sagði Le Pen.
Frakkland ætlar að taka 340 milljarða evra að láni
Staða franskra ríkisfjármála hefur versnað á sama tíma og vaxtakostnaður ríkisins hækkar.
Franska ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að taka 340 milljarða evra að láni árið 2027. Það er um 28 milljörðum evra meira en á þessu ári.
Féð þarf bæði til að fjármagna rekstur ríkisins og til að endurfjármagna eldri skuldir sem eru á gjalddaga.
Ávöxtunarkrafa franskra ríkisskuldabréfa hefur jafnframt hækkað undanfarnar vikur og getur það aukið enn frekar þann kostnað sem ríkissjóður þarf að bera vegna skuldanna.
Le Pen gagnrýndi ríkisstjórnir Emmanuel Macron forseta og sagði þær ekki hafa undirbúið Frakkland nægilega fyrir þann mikla vaxtakostnað sem nú steðjar að ríkissjóði.
Vill festa árlega skuldalækkun í sessi
Le Pen vill setja sérstaka reglu um ríkisfjármál sem skyldi stjórnvöld til að lækka skuldir ríkisins ár frá ári. Hún vill leggja slíka reglu fyrir frönsku þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Markmiðið er að koma fjárlagahallanum niður fyrir 3% af landsframleiðslu árið 2030 og ná samtals 140 milljarða evra sparnaði fyrir árið 2032.
Le Pen hefur jafnframt hvatt Seðlabanka Evrópu til að stuðla að lægri vaxtabyrði.
Hún gagnrýnir einnig stöðu framleiðni í Frakklandi og segir landið hafa dregist aftur úr Bandaríkjunum. Þá telur hún útgjöld Frakka til rannsókna ekki skila landinu nægilegu forskoti í alþjóðlegri tæknisamkeppni.
Ætlar að finna allt að 20 milljarða í lífeyriskerfinu
Stór spurning er hvar Le Pen ætlar að finna þann 140 milljarða evra sparnað sem hún boðar. Hún segist meðal annars ætla að ná fram 15 til 20 milljarða evra sparnaði innan lífeyriskerfisins með því að breyta ákvæðum sem hún telur óskilvirk og ósanngjörn.
Á sama tíma vill Le Pen lækka eftirlaunaaldur í 62 ár og í ákveðnum tilvikum niður í 60 ár.
Ríkisstjórnin boðar sjálf mikið aðhald
Tillögur Le Pen koma aðeins nokkrum dögum eftir að ríkisstjórn Sébastiens Lecornu kynnti fjárlagafrumvarp sitt fyrir árið 2027.
Þar er einnig boðað verulegt aðhald. Meðal annars stendur til að frysta laun opinberra starfsmanna og flestar lífeyrisgreiðslur, auk þess sem gert er ráð fyrir nýjum sköttum.
Ríkisstjórnin stefnir að því að koma fjárlagahallanum niður í 5% á næsta ári.
Sjálfstætt fjármálaeftirlit Frakklands hefur hins vegar sagt að sú lækkun sé aðeins lágmarksviðbragð miðað við alvarlega stöðu ríkisfjármálanna.
Le Pen leggur nú fram sína eigin leið og segir mun umfangsmeiri breytingar nauðsynlegar til að koma böndum á skuldir og vaxtakostnað ríkisins fyrir lok áratugarins.
