
Bakvið tjöldin í stjórnarmyndunarviðræðunum í Danmörku fóru fram leynifundir, hótanir og bréfaskipti áður en skriður komst loks á viðræður um nýja mið-vinstristjórn undir forystu Mette Frederiksen. Fjallað er um málið á vef DR.
Løkke gekk út úr viðræðunum
Í frétt DR er farið yfir viðræðurnar allt frá kosnignum en þar segir að Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne og fyrrverandi forsætisráðherra, hafði um tíma dregið sig út úr formlegum stjórnarmyndunarviðræðum og setti fram afdráttarlausar kröfur áður en hann sneri aftur að samningaborðinu.
Løkke fer með lykilhlutverk í viðræðunum þar sem flokkur hans ræður úrslitum um hvort hægt verði að mynda nýja ríkisstjórn með Jafnaðarmönnum, SF og Radikale.
Leynifundur í utanríkisráðuneytinu
Þann 15. apríl hittust leiðtogar Moderaterne, Venstre, Konservative og Radikale á leynifundi í utanríkisráðuneytinu án aðkomu Mette Frederiksen.
Ástæða fundarins var óánægja með að Jafnaðarmenn töldu eldri velferðarsamning um hækkandi lífeyrisaldur ekki lengur í gildi eftir kosningarnar.
Flokkarnir töldu samninginn grundvallaratriði fyrir danskt efnahagslíf og vildu fá Mette Frederiksen til að staðfesta hann áður en ný ríkisstjórn yrði mynduð.
Sendu leynibréf til Frederiksen
Á fundinum var samið sameiginlegt bréf til Mette Frederiksen þar sem því var mótmælt að samkomulagið hefði fallið úr gildi.
Løkke skrifaði bréfið ásamt leiðtogum Venstre og Konservative. Martin Lidegaard úr Radikale neitaði hins vegar að skrifa undir, þótt hann væri efnislega sammála, þar sem hann vildi ekki auka þrýsting á Frederiksen meðan viðræður stæðu yfir.
Ummæli Frederiksen vöktu reiði
Ástandið versnaði enn þegar Mette Frederiksen hvatti opinberlega hina flokkana til að „bíta á agnið“ og hætta að yfirgefa viðræðurnar.
Ummælin voru túlkuð sem ögrun og leiddu til þess að Venstre og Konservative birtu sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau upplýstu opinberlega að Frederiksen hefði talið velferðarsamkomulagið fallið úr gildi.
Løkke hótaði að sprengja upp viðræðurnar
Á meðan deilan stóð yfir hótaði Løkke að kalla eftir nýrri stjórnarmyndunarlotu með öðrum leiðtoga við stjórnvölinn ef ekki kæmist hreyfing á málið. Þrátt fyrir harða orðræðu héldu samskipti hans og Frederiksen áfram bakvið tjöldin.
Kom aftur að samningaborðinu
Þann 22. apríl sneri Løkke aftur til formlegra stjórnarmyndunarviðræðna eftir 12 daga fjarveru. Þar fékk hann samkvæmt eigin sögn tryggingar um framtíð velferðarsamningsins.
Í kjölfarið opnaðist leið fyrir alvarlegar viðræður um nýja mið-vinstristjórn með stuðningi Enhedslisten.
Telja stjórnarmyndun nálgast
Samningamenn segja nú að viðræðurnar séu lengra komnar en almenningur geri sér grein fyrir og að mögulega verði farið í sameiginlegar fjögurra flokka stjórnarmyndunarviðræður á næstu dögum. Óvissa sé þó enn til staðar þar sem mikið pólitískt tafl og upplýsingastýring einkenni allt ferlið.
