
Líkamsþyngdarstuðull (BMI) getur bæði leitt til þess að offita sé vangreind og að fólk sé ranglega greint með offitu. Þetta sýnir umfangsmikil alþjóðleg rannsókn á rúmlega 844.000 einstaklingum í fjórum ríkjum. Vísindamenn telja að núverandi aðferðir við greiningu offitu geti leitt til þess að sumir fái óþarfa meðferð á meðan aðrir fái ekki þá heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa. Rannsóknin var birt í vísindatímaritinu Nature síðastliðinn miðvikudaginn. Rannsóknin náði til 844.108 fullorðinna einstaklinga í Kína, Bretlandi, Bandaríkjunum og á Spáni. Euronews greinir frá.
Líkamsþyngdarstuðull getur gefið villandi niðurstöður
Líkamsþyngdarstuðull er reiknaður út frá hæð og þyngd einstaklings og hefur lengi verið notaður til að meta hvort fólk sé of þungt eða með offitu.
Aðferðin tekur hins vegar ekki tillit til þess hversu stór hluti líkamsþyngdarinnar er fita, hvar fitan safnast fyrir eða hvort hún hafi þegar haft áhrif á starfsemi líffæra.
Rannsóknin leiddi í ljós að þegar eingöngu var stuðst við BMI fór offita fram hjá greiningu hjá allt að 8,6% þátttakenda. Á sama tíma voru allt að 3,1% ranglega flokkuð með offitu.
Þegar mittismál og hlutfall mittismáls af líkamshæð voru tekin með í matið fækkaði þessum skekkjum.
Greina á milli tveggja tegunda offitu
Vísindamennirnir byggðu rannsóknina á nýrri tillögu að greiningarkerfi sem birt var í læknatímaritinu The Lancet Diabetes & Endocrinology í janúar 2025.
Samkvæmt þeirri nálgun er gerður greinarmunur á klínískri offitu og forklínískri offitu.
Klínísk offita er skilgreind sem ástand þar sem umfram líkamsfita hefur þegar skert starfsemi líffæra eða getu einstaklings til daglegra athafna.
Forklínísk offita á hins vegar við þegar umfram líkamsfita eykur hættu á heilsufarsvandamálum en starfsemi líkamans er enn óskert.
Í rannsókninni reyndust á bilinu 23% til 31% þeirra sem voru með offitu falla undir skilgreininguna á klínískri offitu. Hlutfall þeirra af heildarþýðinu var á bilinu 5,6% til 10,9%.
Mikill munur á heilsufarsáhættu
Niðurstöðurnar sýndu verulegan mun á heilsufarsáhættu einstaklinga eftir því hvort þeir voru með klíníska eða forklíníska offitu.
Klínísk offita tengdist verulega aukinni dánaráhættu en áhættuaukningin var mun minni hjá þeim sem voru með forklíníska offitu.
Þá kom í ljós að meirihluti þeirra sem greindust með forklíníska offitu við upphaf rannsóknarinnar þróaði ekki með sér klíníska offitu á næstu tíu árum.
Hlutfallið var á bilinu 77% til 91% eftir því hvaða rannsóknarhópur var skoðaður.
Vísindamennirnir telja þessar niðurstöður sýna að ekki sé rétt að líta á alla einstaklinga með háan líkamsþyngdarstuðul sem einn og sama sjúklingahópinn.
Vara við bæði ofmeðhöndlun og vanmeðhöndlun
Francesco Rubino, prófessor við King’s College London og einn aðalhöfunda rannsóknarinnar, segir að meðferð við offitu verði að taka mið af raunverulegu heilsufari hvers einstaklings.
Hann bendir á að BMI eitt og sér geti hvorki sýnt hvort einstaklingur sé þegar orðinn veikur vegna offitu né hversu mikil hætta sé á að hann þrói með sér sjúkdóma.
Þetta geti leitt til þess að fólk fái annaðhvort of mikla eða of litla meðferð.
Rubino leggur áherslu á að forklínísk offita eigi hvorki sjálfkrafa að teljast virkur sjúkdómur né vera afgreidd sem hættulaust ástand.
Sumir einstaklingar geti þurft fyrirbyggjandi meðferð en umfang hennar eigi að ráðast af einstaklingsbundinni áhættu.
Vilja breyta greiningu offitu á heimsvísu
An Pan, prófessor við Huazhong University of Science and Technology í Wuhan í Kína og aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir niðurstöðurnar styðja upptöku nýja greiningarkerfisins á alþjóðavísu.
Hann bendir á að munurinn á horfum einstaklinga með klíníska og forklíníska offitu hafi komið fram með sambærilegum hætti í öllum fjórum ríkjunum og hjá ólíkum þjóðernishópum.
Vísindamennirnir telja að með nákvæmari greiningu verði auðveldara að ákvarða hverjir þurfi meðferð vegna sjúkdóma sem þegar hafa komið fram og hverjir geti fremur notið góðs af fyrirbyggjandi aðgerðum.
Þannig verði hægt að beina heilbrigðisþjónustu betur að þörfum hvers einstaklings í stað þess að byggja meðferðarákvarðanir fyrst og fremst á líkamsþyngdarstuðli.
