Loftslagstengd dauðsföll þau fæstu frá upphafi

99,4% minni líkur að deyja í loftslagstengdum hamförum en fyrir 100 árum síðan

Í fjölmiðlum er sagt, að „loftslagskreppan“ leiði til náttúruhamfara í heimsendastíl sem kosta milljónir ofan á milljónir mannslífa. En í raun og veru er þróunin fullkomlega sú gagnstæða. Árið 2022 voru 99,4% minni líkur á að deyja í loftslagstengdum hamförum en hundrað árum áður. Þá eru talin með flóð, þurrkar, stormar, skógareldar og mikill hiti.

Þróunarlínan hefur farið beint niður frá upphafi 20. aldar og engin sjáanleg áhrif af „loftslagsógninni“ í tölfræðinni. Danski fræðimaðurinn Björn Lomborg skrifar á Twitter:

“Hvers vegna er ekki greint frá þessu? Þess í stað flytja fjölmiðlar bara dómsdagsspádóma um loftslagið. Fjölmiðlarnir ættu að segja frá því, hvernig þetta er í raun og veru í stað þess að draga fram einstök hryllingsdæmi með það að markmiði að „hræða bæði börn og fullorðna.“

Björn Lomborg, sem býr í Malmö, hefur áður gefið út alþjóðlega viðurkenndar bækur sem gagnrýna lýsingu á meintri loftslagsógn. Hann útskýrir nánar í eigin rannsókn, hvernig fullyrðingar um loftslagshamfarir eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila