Lögreglan hættir rannsókn í byrlunarmálinu

Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur tekið þá ákvörðun að hætta rannsókn á umfangsmiklu máli sem tengist meintri byrlun, afritun á upplýsingum og dreifingu kynferðislegs myndefnis úr farsíma Páls Steingrímssonar skipstjóra. Málið var tilkynnt til lögreglu þann 14. maí 2021, en rannsókn málsins hefur staðið yfir um tveggja ára skeið og tengst hafa sjö einstaklingar réttarstöðu sakbornings í því. Einn þessara einstaklinga var fyrrverandi eiginkona Páls en hinir sem höfðu stöðu sakbornings voru blaðamenn, Kjarnans, Stundarinnar og RÚV.

Rannsókn málsins laut að þremur meginatriðum: líkamsárás í formi byrlunar, broti á kynferðislegum friðhelgislögum og broti gegn friðhelgi einkalífs með ólögmætri afritun gagna. Samkvæmt lögreglu beindust allir þessir þættir að einum sakborningi en sumir þeirra einnig að öðrum einstaklingum.

Sakarefnið varðar þrenns konar brot

1. Líkamsárás með byrlun:
Einn sakborningur, eignkona Páls var grunaður um að hafa byrlað brotaþola lyf, en rannsókn leiddi í ljós að hann setti lyf út í áfengi sem brotaþoli drakk. Brotaþoli veikist alvarlega nokkrum klukkustundum síðar. Var Páll fluttur meðvitundarlaus á spítala og þar náði þáverandi eiginkona Páls að koma höndum yfir síma hans. Hins vegar hefur lögreglu ekki tekist að sanna með óyggjandi hætti að orsakasamband hafi verið á milli lyfjabyrlunarinnar og veikinda brotaþola. Þar að auki vefst fyrir ákæruvaldinu að sanna ásetning sakbornings til að valda brotaþola skaða, sérstaklega í ljósi andlegs ástands sakbornings á verknaðarstundu. Þrátt fyrir að lögregla telji háttsemina varða við 217. grein almennra hegningarlaga, er líklegt að brotið sé fyrnt og því hefur verið ákveðið að hætta rannsókn á þessum hluta málsins.

2. Dreifing kynferðislegs myndefnis:
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að einn sakborningur, eiginkona Páls, sem náði afrit af síma brotaþola, sendi sjálfum sér kynferðislegt myndefni af eiginmanni sínum úr símanum. Þrátt fyrir það hefur ekkert komið fram sem bendir til að þessi aðili hafi dreift myndefninu frekar. Engar sannanir liggja fyrir um að þeir sem meðhöndluðu símann eftir að hann var afhentur fjölmiðlum hafi tekið þátt í dreifingu efnisins. Vegna veikinda sakbornings leikur hins vegar vafi á hvort hann hafi verið sakhæfur á verknaðarstundu og þar sem sakborningur neitaði að undirgangast sakhæfismat hefur lögregla einnig ákveðið að hætta rannsókn á þessum hluta málsins.

3. Brot gegn friðhelgi einkalífs með afritun gagna:
Rannsókn lögreglu beindist einnig að því hver hefði afritað innihald síma brotaþola og hvernig það var gert. Sakborningurinn sem afhenti síma brotaþola til fjölmiðla hefur viðurkennt að hafa gert það og veitt upplýsingar um hverjir hafi tekið við símanum. Samkvæmt sakborningi voru aðrir starfsmenn fjölmiðilsins RÚV með símann í sólarhring og afrituðu innihald hans, þar með talið persónuleg gögn brotaþola. Þrátt fyrir langvarandi rannsókn hefur lögreglu ekki tekist að sanna hver nákvæmlega afritaði gögnin eða dreifði þeim, en fréttir hafa verið birtar upp úr þessum gögnum, þar á meðal tölvupóstar og spjallskilaboð. Í ljósi fyrningarákvæða og skorts á fullnægjandi sönnunargögnum hefur verið ákveðið að hætta rannsókn í þessu sakarefni einnig.

Rannsóknin dróst á langinn

Rannsókn málsins hefur tekið verulegan tíma, og segir lögregla að veikindi eins sakbornings hafi tafið málið, auk ágreinings um skyldu blaðamanna til að veita skýrslur hjá lögreglu. Þá hefur réttarfarslegur ágreiningur um hæfi starfsmanna lögreglu einnig haft áhrif á gang málsins, þar sem málin voru tekin fyrir á þremur dómsstigum.

Auk þess tókst ekki að afla fullnægjandi stafrænna gagna þar sem þeim hafði verið eytt og erlendar réttarbeiðnir til tölvuþjónustufyrirtækja skiluðu engum árangri. Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra telur að það hafi uppfyllt skyldur sínar samkvæmt sakamálalögum, en málinu er nú lokið og hefur verið hætt án ákæru gegn sakborningum.

Lögreglan hyggst ekki veita neinar frekari upplýsingar um málið

Ekki er ljóst á þessari stundu hvort Páll muni vísa málinu til ríkissaksóknara til frekari meðferðar

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila