
Lögregla brást við óvenjulegu atviki fyrr í vikunni þegar maður mætti á lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík með haglabyssu. Vopnaðir lögreglumenn voru sendir á staðinn í samræmi við verklag þegar tilkynnt er um vopnaburð á almannafæri. Í ljós kom að maðurinn var ekki með illt í hyggju heldur ætlaði að skila vopninu til förgunar.
Skotvopn eiga að vera óhlaðin og í viðeigandi umbúnaði
Lögregla minnir á að vopnaburður á almannafæri er bannaður hér á landi. Undantekningar gilda um bitvopn þegar slíkt telst eðlilegt, til dæmis við vinnu eða veiðar. Samkvæmt vopnalögum skulu skotvopn vera óhlaðin og þar til gerðum umbúnaði við flutning. Þetta á einnig við þegar þau eru flutt í ökutækjum eða öðrum farartækjum.
Fólk hafi samband áður en vopnum er skilað
Þegar skotvopnum er skilað til förgunar er rétt að afhenda þau beint til leyfaþjónustu lögreglu. Mælt er með að haft sé samband fyrirfram í síma 444 1000 áður en komið er með vopn á lögreglustöð.
