
Abdul Ballout, 21 árs gamall þýskur ríkisborgari af líbönskum uppruna, sem þýsk yfirvöld telja hafa ekið bifreið inn í mannfjölda á Gay Pride hátíð í Berlín í gær, hafði áður komið við sögu lögreglu og öryggisyfirvalda vegna afbrota og gruns um tengsl við íslamista. Í árásinni lét ein kona lífið og 29 manns slösuðust. Þetta segir í frétt Bild.
Ballout fæddist í Þýskalandi árið 2005 og hafði um árabil verið þekktur hjá þýskum öryggisyfirvöldum. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafði hann sýnt stuðning við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams (IS) og reynt að komast til Sýrlands til að ganga til liðs við samtökin. Hann hafði einnig verið handtekinn vegna gruns um undirbúning hryðjuverka og setið í gæsluvarðhaldi áður en honum var sleppt.
Hafði áður hlotið skilorðsdóm
Málið hefur vakið mikla umræðu í Þýskalandi þar sem Ballout hafði áður verið dæmdur fyrir meðal annars ofbeldisbrot og rán samkvæmt reglum um ungmenni en hlaut skilorðsbundinn dóm. Saksóknarar höfðu mótmælt þeirri niðurstöðu dómstóla.
Alexander Dobrindt innanríkisráðherra hefur sagt að sérstaklega verði farið yfir hvernig einstaklingur sem talinn var öryggisógn hafi getað gengið frjáls. Kai Wegner, ríkisstjóri Berlínar, sagði jafnframt að erfitt væri að skilja að honum hefði verið veitt skilorð.
Skotinn við handtökutilraun
Ballout var skotinn til bana af sérsveit þýsku lögreglunnar á sunnudagskvöld þegar reynt var að handtaka hann í garðhýsasvæði í Spandau-hverfi Berlínar. Samkvæmt þýskum yfirvöldum réðst hann að lögreglumönnum með stunguvopni og lögreglan svaraði með skotum.
Rannsókn málsins heldur áfram þótt Ballout sé látinn. Alríkissaksóknari hefur tekið við rannsókninni og yfirvöld kanna meðal annars hvort fleiri hafi átt þátt í árásinni.
