Marokkó sakar Spán um ofbeldi gegn flóttafólki og gerir tilkall til Ceuta og Melilla

Marokkósk stjórnvöld hafa á ný beint sjónum að stöðu spænsku borganna Ceuta og Melilla í Norður-Afríku. Mannréttindaráð Marokkó sakar spænsk öryggisyfirvöld jafnframt um að hafa beitt farandfólk ofbeldi þegar um 80.000 manns fóru yfir landamærin til Ceuta á aðeins 48 klukkustundum í lok júlí. Þetta kemur fram ú umfjöllun Euronews.

Segja ofbeldi hafa átt sér stað fjarri myndavélum

Í bráðabirgðaskýrslu mannréttindaráðsins, CNDH, kemur fram að rætt hafi verið við farandfólk sem sent var aftur til Marokkó. Samkvæmt frásögnum þess hafi spænskir lögreglumenn beitt fólk ofbeldi og illri meðferð, einkum á stöðum þar sem myndavélar náðu ekki til.

Þá segir í skýrslunni að börn og ungmenni hafi orðið fyrir svívirðingum og barsmíðum af hálfu öfgahópa í Ceuta. Yfirvöld í borginni eru einnig gagnrýnd fyrir að hafa ekki tryggt farandfólkinu nægilega þjónustu og aðstoð.

Ráðið hefur jafnframt rannsakað þátt samfélagsmiðla í fólksstraumnum. Villandi upplýsingar um möguleika fólks á að komast yfir landamærin höfðu dreifst í stórum Facebook-hópum áður en tugir þúsunda lögðu leið sína til Ceuta.

Marokkó vill Ceuta og Melilla

Samhliða ásökununum hefur Marokkó ítrekað tilkall sitt til Ceuta og Melilla. Abdellatif Ouahbi, dómsmálaráðherra Marokkó, segir málið enn vera á borðinu þegar fulltrúar Marokkó og Spánar funda.

Hann segir stjórnvöld í Rabat fylgja langtímastefnu um að fá borgirnar undir marokkóska stjórn með viðræðum. Hann hefur einnig krafist þess að marokkósk börn og ungmenni sem dvelja án forráðamanna á Spáni verði send aftur til Marokkó.

Ceuta og Melilla eru á norðurströnd Afríku en tilheyra Spáni. Melilla hefur verið undir spænskri stjórn frá 1497 en Ceuta komst undir spænska krúnu á 17. öld. Marokkó hefur lengi gert tilkall til borganna en Spánn lítur á þær sem óaðskiljanlegan hluta spænsks yfirráðasvæðis.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila