
Meirihluti Þjóðverja vill að aðrir stjórnmálaflokkar taki AfD í auknum mæli inn í pólitískt starf samkvæmt nýrri könnun sem gerð var daginn eftir stórsigur AfD í Saxlandi-Anhalt. 51% vilja meiri aðkomu flokksins en 45% eru því andvíg. Sjá má könnunina með því að smella hér.
Niðurstaðan kemur fram í hraðkönnun sem Infratest dimap gerði fyrir ARD 7. september meðal 1.051 kosningabærra Þjóðverja. AfD fékk 43,8% atkvæða í kosningunum í Saxlandi-Anhalt og varð langstærsti flokkur sambandslandsins.
Stuðningur nær út fyrir raðir AfD
Stuðningur við aukna aðkomu AfD nær einnig til kjósenda annarra flokka. 40% stuðningsmanna CDU og CSU vilja að AfD verði tekið meira inn í pólitískt starf og fjórðungur stuðningsmanna SPD er sömu skoðunar.
Könnunin sýnir einnig að 42% Þjóðverja telja að aðrir flokkar hafi komið ósanngjarnt fram við AfD. 53% eru því ósammála.
45% vilja Siegmund sem forsætisráðherra Saxlands-Anhalt
45% Þjóðverja telja að Ulrich Siegmund, leiðtogi AfD í Saxlandi-Anhalt, eigi að verða næsti forsætisráðherra sambandslandsins eftir kosningasigurinn. 48% eru því andvíg.
Athygli vekur að 36% stuðningsmanna CDU og CSU vilja að Siegmund taki við embættinu. Sama gildir um 18% stuðningsmanna Græningja, 12% stuðningsmanna SPD og 10% stuðningsmanna Vinstriflokksins.
