Meloni gagnrýnir ESB harðlega vegna orkukreppunnar

Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu hefur hert gagnrýni sína á Evrópusambandið og krefst aukins fjárhagslegs svigrúms til að takast á við hækkandi orkukostnað sem þrýstir sífellt meira á ítalskt efnahagslíf. Meloni hefur síðustu daga gagnrýnt Evrópusambandið harðlega og sagt það grafa undan samkeppnishæfni Evrópu með skriffinnsku og hugmyndafræðilegri stefnumótun. Þetta kemur fram í frétt Euronews.

Kallar ESB skrifræðisskrímsli

Í ræðu á fundi atvinnulífsins á Ítalíu lýsti Meloni Evrópusambandinu sem „skrifræðisskrímsli“ sem hafi fórnað hagvexti, samkeppnishæfni og stefnumótandi framtíðarsýn fyrir hugmyndafræðilega og tæknilega stjórnsýslu. Hún gagnrýndi sérstaklega græna orkuskiptastefnu sambandsins og sagði reglur ESB algerlega óraunhæfar á sama tíma og Evrópa glími við vaxandi orkukreppu og efnahagsþrýsting.

Vill meira fjárhagslegt svigrúm vegna orkukostnaðar

Meloni hefur einnig sent Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB sérstakt bréf þar sem hún krefst meiri sveigjanleika í ríkisfjármálum til að bregðast við orkukreppunni, líkt og áður hafi verið gert vegna aukinna útgjalda til varnarmála.

Framkvæmdastjórn ESB hefur staðfest að verið sé að skoða möguleika á ákveðnum undanþágum, en Valdis Dombrovskis efnahagsstjóri sambandsins hefur lagt áherslu á að slíkar aðgerðir verði að vera tímabundnar, markvissar og fjárhagslega sjálfbærar.

Kosningabarátta og orkukreppa fléttast saman

Ítalía stendur nú í miðjum sveitarstjórnarkosningum og Meloni undirbýr sig jafnframt fyrir þingkosningar á næsta ári. Andstaða við ESB hefur lengi verið fastur þáttur í ítalskri kosningabaráttu og talið er að harðari tónn Meloni gagnvart Evrópusambandinu tengist einnig innanlandspólitík og tilraunum til að styrkja stöðu ríkisstjórnar hennar. Meloni nýtur talsvert mikils stuðnings meðal kjósenda samkvæmt nýjustu könnunum.

Ítalía undir miklum efnahagsþrýstingi

Ítalía er eitt skuldsettasta ríki Evrópusambandsins og jafnframt meðal þeirra landa sem búa við hæstan orkukostnað. Framkvæmdastjórn ESB hefur þegar lækkað hagvaxtarspá Ítalíu fyrir árið 2026 úr 0,8% niður í 0,5% vegna aukinnar verðbólgu og hækkandi orkukostnaðar. Þá stendur ítalskur iðnaður frammi fyrir miklum áskorunum ef ástandið í Persaflóa versnar og orkuflutningar halda áfram að raskast.

Óttast erfiðan vetur fram undan

Sérfræðingar segja að ef stríðið við Íran dregst á langinn og orkuverð helst hátt fram yfir veturinn muni þrýstingurinn á ríkisstjórn Meloni aukast verulega. Ítalía hefur hingað til notið mikils stuðnings úr endurreisnarsjóði Evrópusambandsins eftir heimsfaraldurinn, en þeim stuðningi á að ljúka árið 2027, sem gæti gert stjórnvöldum erfiðara fyrir að mæta nýjum efnahagsáföllum á kosningaári.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila