
Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur hafa tekið höndum saman um að þrýsta á harðari aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum til Evrópu. Þær segja stjórnlausan innflytjendastraum hafa aukið glæpi, sett opinbera þjónustu undir þrýsting og grafið undan trausti almennings.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að þúsundir ólöglegra innflytjenda komu til spænska landsvæðisins Ceuta í Norður-Afríku í lok júlí. Atburðirnir hafa á ný vakið harðar deilur innan Evrópu um landamæraeftirlit og innflytjendastefnu. Þetta kemur fram í frétt Politico.
Ólíkur pólitískur bakgrunnur
Meloni er leiðtogi hægristjórnar á Ítalíu en Frederiksen kemur úr röðum danskra jafnaðarmanna. Þær viðurkenna að pólitískur bakgrunnur þeirra sé mjög ólíkur og þær séu langt frá því að vera sammála um öll mál.
Afstaðan skýr.
„Við sættum okkur ekki við stjórnlausan innflutning fólks til Evrópu og höfum stuðlað að strangri innflytjendastefnu bæði í löndum okkar og í Evrópu,“ segja þær í sameiginlegri yfirlýsingu.
Danmörk og Ítalía sendu framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sameiginlegt bréf eftir að ástandið í Ceuta versnaði og kröfðust tafarlausra aðgerða á ytri landamærum sambandsins. Leiðtogar 20 annarra Evrópuríkja skrifuðu einnig undir bréfið.
Almenningur hafi greitt of hátt verð
Meloni og Frederiksen segja afleiðingar ólöglegrar innflytjenda vera augljósar. Þær nefna aukna glæpatíðni, vaxandi álag á opinbera þjónustu og minnkandi traust borgaranna.
„Of lengi hefur venjulegt fólk greitt of hátt verð vegna stjórnlausra innflytjenda,“ segja þær.
Ítalía hefur tekið sérstaklega harða afstöðu gagnvart spænskum stjórnvöldum eftir atburðina í Ceuta. Ítölsk stjórnvöld hafa meðal annars tekið upp landamæraeftirlit með ferðamönnum sem koma frá Spáni.
Vilja verja kristna menningararfleifð Evrópu
Leiðtogarnir leggja jafnframt áherslu á að innflytjendur sem ákveða að setjast að í Evrópu verði að virða þau gildi sem samfélög álfunnar byggja á.
„Við erum báðar stoltar af kristinni menningararfleifð Evrópu og viljum vernda hana,“ segja Meloni og Frederiksen.
Þær gera jafnframt þá kröfu að fólk sem komi til landa þeirra og kjósi að gera Evrópu að heimili sínu virði evrópsk gildi og reyni ekki að þröngva upp á samfélagið lífsháttum sem ekki samræmist þeim.
