
Friedrich Merz Þýskalandskanslari kallar úrslit Kristilegra demókrata, CDU, í fylkiskosningunum í Mecklenburg-Vorpommern „hörmungar sem ekki sé hægt að fegra“. Flokkur kanslarans fékk aðeins um 5,5% atkvæða samkvæmt útgönguspám og er því rétt yfir 5% þröskuldinum sem þarf til að fá fulltrúa á fylkisþingið. Þetta er versta útkoma CDU í fylkiskosningum frá stofnun Sambandslýðveldisins Þýskalands árið 1949. Fjallað er um málið í Bild.
Merz kom fram fyrir fjölmiðla í höfuðstöðvum CDU aðeins nokkrum mínútum eftir að fyrstu spár ARD og ZDF voru birtar. Hann beið ekki eftir frekari talningu heldur gerði strax ljóst að hann hygðist áfram gegna embætti kanslara og formanns CDU.
Hann sagði fram undan erfiðar umbætur og að þær myndu krefjast mikils af Þjóðverjum. Hann hygðist sjálfur axla ábyrgð á þeirri vinnu.
CDU rétt yfir 5% þröskuldinum
CDU varð fyrir sérstaklega þungu höggi í Mecklenburg-Vorpommern. AfD mældist stærsti flokkurinn með um 37% atkvæða en SPD fylgdi fast á eftir með 35,5%. CDU fékk aðeins 5,5%.
Merz sagði CDU hafa lent á milli AfD og SPD í harðri kosningabaráttu og orðið undir í átökum stóru flokkanna.
Hann viðurkenndi jafnframt að kosningabaráttan hefði verið erfið vegna þess að flokkurinn hefði ekki fengið meðbyr frá landsmálunum í Berlín.
Úrslitin koma aðeins 2 vikum eftir að CDU beið annað mikið afhroð í Saxlandi-Anhalt. Þar fékk AfD tæp 44% atkvæða en CDU 17,2%.
Merz hafnar vangaveltum um afsögn
Bild segir Merz hafa viljað koma fram strax eftir fyrstu spár til að stöðva vangaveltur um pólitíska framtíð sína.
Fyrir kosningarnar hafði verið rætt um að staða hans sem leiðtoga CDU gæti orðið mjög erfið ef flokkurinn biði algjört afhroð í Mecklenburg-Vorpommern. Reuters hafði sömuleiðis greint frá því fyrir kosningarnar að úrslitin gætu haft veruleg áhrif á pólitíska framtíð kanslarans.
Merz sagðist ætla að halda áfram og sagði nauðsynlegar breytingar krefjast staðfestu, þolinmæði og kjarks.
„Ég tek þessa ábyrgð á mig því ég vil koma þessu landi áfram,“ sagði Merz samkvæmt Bild.
AfD stærst í Mecklenburg-Vorpommern
AfD mældist með 37% samkvæmt fyrstu útgönguspá ARD og varð þar með stærsti flokkurinn í Mecklenburg-Vorpommern. SPD mældist með 35,5%.
Þetta er annar stórsigur AfD í fylkiskosningum á innan við mánuði eftir sigur flokksins í Saxlandi-Anhalt.
Þrátt fyrir að AfD sé stærsti flokkurinn er óvíst hvort hann geti komist í ríkisstjórn fylkisins þar sem aðrir flokkar hafa útilokað stjórnarsamstarf við hann.
Í Berlín varð niðurstaðan einnig erfið fyrir CDU. Vinstriflokkurinn mældist stærstur með 24,5%, CDU með 20% og AfD með 16%.
Kosningaúrslitin auka því enn þrýstinginn á Merz og forystu CDU, en kanslarinn hefur sjálfur gert ljóst að hann hyggist ekki víkja.
