Mikilvægt að tryggja náin tengsl við Bretland til framtíðar

Það er mikilvægt grundvallaratriði að tryggja náin tengsl Íslands og Bretlands til framtíðar, sér í lagi vegna þeirrar staðreyndar að Bretland sé á útleið úr Evrópusambandinu. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í tilefni af útgáfu skýrslu um hagsmuni Íslands vegna Brexit. Eins og kunnugt er mun útganga Bretlands úr ESB hafa víðtæk áhrif á Evrópusamstarf til framtíðar og snertir hagsmuni Íslands með beinum hætti. Náin tengsl eru á milli Íslands og Bretlands sem byggja í dag að miklu leyti á EES-samningnum. Í skýrslunni sem ber yfirskriftina, Ísland og Brexit: Greining hagsmuna vegna útgöngu Bretlands úr EES, er lagt mat á áhrif þess að ákvæði EES-samningsins giltu ekki lengur í samskiptum við Bretland. Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á áframhaldandi aðgang að breskum mörkuðum og á samstarf ríkjanna á ýmsum öðrum sviðum. Skýrslan leggur grunn að umfangsmikilli vinnu sem nú á sér stað við að skilgreina enn fremur markmið Íslands í framtíðarviðræðum við Bretland.
Bretland er eitt af allra mikilvægustu samstarfsríkjum okkar. Að tryggja náin tengsl við Breta til framtíðar er því algjört forgangsverkefni. Til að geta komið auga á tækifærin sem þessar sviptingar gætu haft í för með sér er mikilvægt að vinna heimavinnuna vel. Þessi skýrsla er til marks um mikilvægi þessa viðfangsefnis,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. Skoða má skýrsluna með því að smella hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila