
Laumu-landráðamenn og óvitar skilja ekki niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn var (sumir vilja það ekki og skálda einhverja ræpu). Þeir segja að “meginatriðið nú sé að rækta og vernda EES-samninginn”- og vilja að Alþingi geri sérstaka samþykkt um að vald Evrópusambandsins sé æðra valdi Alþingis og básúna út alskyns svamli og rakalausri þvælu um ágæti EES og bókunar 35.
EES-samningurinn er verkfæri Evrópusambandsins til þess að undiroka Ísland, Noreg og Liechtenstein og þykjast vera að bjóða þeim inn á “innri markaðinn” sem rýrnar stöðugt en EES er í raun til þess að útiloka þau frá heimsmarkaðnum. Íslenskir landráðamenn verða nú að bíða færis eitthvað lengur til þess að koma Íslandi undir erlent vald.
Norðmenn eru komnir vel í gang með að afneita valdi EES/ESB og hafa nú ákveðið að halda áfram olíu-og gasvinnslu í trássi við bann ESB.
Íslensk stjórnvöld eru aumari. Þau banna leit að olíu og gasi. Og horfa aðgerðarlaus upp á eyðileggingu orkumála, niðurníðslu flugs og sjóferða og yfirtöku braskara í ESB/EES á íslenskum landareignum. Og yfirtöku ESB á stjórn landsins. ESB ætlar að teyma Ísland í fyrirframtapað stórstríð í krafti EES.
