
Bandarísk yfirvöld hafa ákært 26 ára mann frá New Jersey fyrir að hafa ráðist á starfsmenn innflytjendaeftirlitsins ICE í átökum fyrir utan Delaney Hall-fangageymsluna í Newark í vikunni. Þetta kemur fram í frétt Fox News.
Maðurinn, Brendan John Geier, sparkaði í lögreglumenn og beit tvo alríkisstarfsmenn á vegum ICE í handlegg og lófa í átökum sem brutust út þegar hópur mótmælenda lokaði vegi nærri fangageymslunni.
Lögreglumenn fluttir á sjúkrahús
Samkvæmt bandaríska dómsmálaráðuneytinu höfðu starfsmenn ICE skipað hópnum að færa sig frá svæðinu, en mótmælendurnir hafi neitað og í kjölfarið lent í átökum við lögreglu. Yfirvöld segja Geier hafa ráðist á lögreglumennina í átökunum og að tveir hafi þurft á læknisaðstoð að halda á sjúkrahúsi vegna áverkanna. Hann hefur verið ákærður fyrir árás á alríkisstarfsmenn og fyrir að valda líkamstjóni.
Trump-stjórnin lofar hörðum viðbrögðum
Todd Blanche starfandi dómsmálaráðherra sagði að bandarísk stjórnvöld muni ekki sætta sig við árásir á starfsmenn ICE og birti myndir af blóðugum áverkum lögreglumannanna á samfélagsmiðlum. „Friðsamleg mótmæli fela ekki í sér að ráðast á alríkislögreglumenn,“ sagði Blanche. Markwayne Mullin heimavarnaráðherra sagði jafnframt að allir sem réðust á lögreglumenn yrðu sóttir til saka af fullum þunga laganna.
Átök halda áfram fyrir utan fangageymsluna
Mótmælin fyrir utan Delaney Hall hafa nú staðið yfir í aðra viku og í dag voru bæði mótmælendur gegn ICE og stuðningsmenn innflytjendaeftirlitsins á svæðinu og var óeirðarlögreglan á svæðinu til að tryggja frið.
Mikie Sherrill ríkisstjóri New Jersey tilkynnti á föstudag að ríkislögreglan myndi taka yfir öryggismál við fangageymsluna eftir gagnrýni frá alríkisyfirvöldum um að staðbundin lögregla hefði ekki sinnt nægjanlegri aðstoð við að halda uppi reglu á svæðinu.
