Mótmæli brutust út þegar 120 hælisleitendur voru fluttir að landi í Gosport

Fjöldi mótmælenda söfnuðust saman við höfnina í Gosport á suðurströnd Englands í gærkvöld þegar um 120 hælisleitendur voru fluttir þar að landi eftir ferð yfir Ermarsund. Mikill lögregluviðbúnaður var á svæðinu og kom til spennu þegar mótmælendur stöðvuðu för lögreglubifreiða við höfnina. Þetta kemur fram í frétt GB News.

Báturinn hafði lagt af stað frá Cherbourg í Normandí um klukkan 6 í gærmorgun og kom að suðurströnd Englands um hálf ellefu í gærkvöld. Franskir fjölmiðlar sögðu um 120 manns hafa verið um borð.

Frönsk björgunarskip fylgdu bátnum þar til hann kom inn á breskt hafsvæði. Þar tóku tveir björgunarbátar RNLI við fólkinu og fluttu það að landi í Gosport.

Mótmælendur stöðvuðu lögreglubíla

Lögreglan í Hampshire og á Isle of Wight hafði undirbúið mikinn viðbúnað áður en fólkið kom að landi. Lögreglubifreiðar fylgdu meðal annars rútum um bæinn sem ætlað var að flytja fólkið frá höfninni til skráningar.

Mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram en spenna jókst þegar lögreglubifreiðar reyndu að komast í gegnum mannfjöldann og inn á bílastæði við höfnina.

Nokkrir mótmælendur gengu fyrir lögreglubílana og komu í veg fyrir að þeir kæmust áfram. Fólk safnaðist jafnframt að bifreiðunum og hrópaði meðal annars „skammist ykkar“ og „vísið þeim öllum úr landi“.

Vegatálmi var einnig reistur á götu nærri höfninni.

Lögregla setti sérstakar takmarkanir

Lögregla greip til sérstakra ráðstafana í Gosport og Portsmouth vegna mótmælanna.

Mótmælendum var gert að halda sig á afmörkuðu svæði við Walpole-bílastæðið. Jafnframt voru settar reglur sem banna fólki að hylja andlit sitt í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að hægt væri að bera kennsl á það.

Lögregla gaf einnig út fyrirmæli sem veita henni heimild til að vísa fólki af tilteknum svæðum í Gosport og banna því að snúa aftur í ákveðinn tíma.

Lögreglan sagði aðgerðirnar eiga að tryggja öryggi íbúa og þeirra sem vildu nýta rétt sinn til friðsamlegra mótmæla.

Mótmæli hafa áður orðið vegna komu báta

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mótmæli verða vegna þess að fólk sem fer yfir Ermarsund er flutt að landi á þessu svæði.

Hundruð manna komu saman í Eastney nærri Portsmouth í byrjun september þegar tveir björgunarbátar komu þangað með fólk sem hafði farið yfir sundið.

Síðar var hætt við að flytja annan hóp að landi á svæðinu eftir frekari mótmæli í Dover, Southampton og Gosport. Fólkið var þess í stað flutt til Dover.

George Madgwick, leiðtogi Reform UK í sveitarstjórn Hampshire, hafði greint frá fyrirhugaðri komu bátsins áður en hann náði landi. Hann hvatti fólk sem ætlaði á vettvang til að halda ró sinni.

Suella Braverman, þingmaður Reform UK og fyrrverandi innanríkisráðherra, gagnrýndi ákvörðunina um að flytja fólkið til Gosport og krafðist þess að ríkisstjórnin gripi inn í.

19.451 komið yfir Ermarsund á árinu

Bráðabirgðatölur sýna að 19.451 einstaklingur hefur komið yfir Ermarsund á smábátum það sem af er ári.

Bresk stjórnvöld segja Border Security Command fylgjast allan sólarhringinn með umferð um sundið og leggja áherslu á að allir sem koma með smábátum séu stöðvaðir, skráðir og mál þeirra tekin til afgreiðslu.

Mótmælin í Gosport koma aðeins nokkrum dögum eftir að Bretland og Frakkland hættu við svokallað „einn inn, einn út“-samkomulag.

Samkvæmt því gátu Bretar sent fólk sem kom yfir Ermarsund aftur til Frakklands gegn því að taka á móti jafnmörgum hælisleitendum sem komu til Bretlands eftir löglegum leiðum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila